Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

894/2010

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á tollkvótum samkvæmt samningi milli Íslands og Evrópubandalagsins um viðskipti með landbúnaðarvörur á grundvelli 19. gr. EES-samningsins og með vísun til 4. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum.

Tollkvótar samkvæmt reglugerð þessari taka til vara sem upprunnar eru í ríkjum Evrópubandalagsins sbr. bókun 4 við EES-samninginn.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vöruliður:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

0202

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst

01.01. - 31.12.11

100.000

0

0

0203.2100, 0203.22xx

Svínakjöt, fryst

01.01. - 31.12.11

100.000

0

0

0203.29xx

Svínakjöt, fryst

01.01. - 31.12.11

100.000

0

0

0207.1200, 0207.3300

Kjöt af alifuglum, fryst

01.01. - 31.12.11

100.000

0

0

0207

Kjöt af alifuglum, fryst

01.01. - 31.12.11

100.000

0

0

0208.9003

Rjúpur, frystar

01.01. - 31.12.11

ótilgreint

0

0

ex 0210

Kjöt og ætir hlutar af dýrum, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt; ætt mjöl, einnig fínmalað, úr kjöti eða hlutum af dýrum (**)

01.01. - 31.12.11

50.000

0

0

ex 0406

Ostur og ystingur (**)

01.01. - 31.12.11

20.000

0

0

0406

Ostur og ystingur

01.01. - 31.12.11

80.000

0

0

1601

Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum

01.01. - 31.12.11

50.000

0

0

1602

Annað kjöt, hlutar af dýrum eða blóð, unnið eða varið skemmdum

01.01. - 31.12.11

50.000

0

0

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 510/2006 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.

Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ótilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, sem birt er á heimasíðu þess, þar sem vísað er til skilmála reglugerðar þessarar.

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og 65. gr. B laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. nóvember 2010.

Jón Bjarnason.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica