Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

841/2010

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 105/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 854/2004 um sértækar reglur um skipulag opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis. - Brottfallin

1. gr.

Innleiðing.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:

a)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2076/2005 um bráðabirgða­fyrirkomulag við framkvæmd reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 853/2004, (EB) nr. 854/2004 og (EB) nr. 882/2004 og um breytingu á reglugerðum (EB) nr. 853/2004 og (EB) nr. 854/2004. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 137/2007, frá 1. maí 2010. Reglugerðin er birt sem fylgiskjal III við reglugerð nr. 104/2010.

b)

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1021/2008 um breytingu á I., II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 854/2004 um sértækar reglur um skipulag opinbers eftirlits með afurðum úr dýraríkinu sem eru ætlaðar til manneldis og reglugerð (EB) nr. 2076/2005 að því er varðar lifandi samlokur, tilteknar lagarafurðir og starfsfólk sem aðstoðar við opinbert eftirlit í sláturhúsum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2010, frá 1. maí 2010. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 56, frá 7. október 2010, bls. 81.



2. gr.

Eftirlit.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995.

3. gr.

Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Lagastoð.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerðin öðlast þegar gildi. Þó taka efnisákvæði ofangreindra reglugerða skv. 1. gr. ekki til kjöts, mjólkur, eggja og hrárra afurða úr þessum matvælategundum fyrr en 1. nóvember 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. október 2010.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica