Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

265/2010

Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1881/2006 um hámarksgildi fyrir tiltekin aðskotaefni í matvælum.

Breytingareglugerðir:

1. gr.

Innleiðing.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 60/2009, frá 30. maí 2009, öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1881/2006 um hámarksgildi fyrir tiltekin aðskotaefni í matvælum.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1126/2007 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1881/2006 hámarksgildi fyrir tiltekin aðskotaefni í matvælum að því er varðar eiturefni sveppa af ættkvíslinni Fusarium í maís og maísafurðum.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 629/2008 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1881/2006 hámarksgildi fyrir tiltekin aðskotaefni í matvælum.

2. gr.

Fylgiskjöl.

Reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr eru birtar sem fylgiskjöl I-III við reglugerð þessa.

3. gr.

Breytingar á 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 1881/2006.

Eftirfarandi málsgrein bætist við 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 1881/2006: Að því er varðar hámarksgildi fyrir díoxín og díoxínlík PCB í olíu úr sjávardýrum er stjórnvöldum á Íslandi og í Noregi heimilt að viðhalda hámarksgildi fyrir díoxín, fúrön og díoxínlík PCB (WHO-PCDD/F-PCB-TEQ) sem er 5 pg á hvert gramm fitu.

4. gr.

Eftirlit.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

6. gr.

Brottfall reglugerða.

Við gildistöku reglugerðar þessarar falla úr gildi eftirfarandi reglugerðir:

  1. Reglugerð nr. 502/2003 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
  2. Reglugerð nr. 661/2003 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
  3. Reglugerð nr. 662/2003 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
  4. Reglugerð nr. 439/2005 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
  5. Reglugerð nr. 555/2006 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
  6. Reglugerð nr. 237/2007 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
  7. Reglugerð nr. 1289/2007 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
  8. Reglugerð nr. 1307/2007 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
  9. Reglugerð nr. 697/2008 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.
  10. Reglugerð nr. 790/2008 um gildistöku tiltekinnar gerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum.

7. gr.

Lagastoð.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

8. gr.

Gildistaka.

Reglugerðin tekur þegar gildi. Þó taka efnisákvæði reglugerða framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr. ekki til frumframleiðslu á kjöti, mjólk og eggjum fyrr en 1. nóvember 2011. Um hugtakið "frumframleiðslu" gildir skilgreining 4. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 15. mars 2010.

Jón Bjarnason.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica