Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 5. nóv. 2022

1479/2021

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1162/2021 um loðnuveiðar færeyskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu 2021/2022.

1. gr.

3. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Til og með 17. febrúar 2022 er færeyskum skipum heimilt að landa 2/3 hlutum af kvóta sínum til manneldisvinnslu utan Íslands eða vinna aflann til manneldis um borð. Eftir 17. febrúar 2022 er að hámarki heimilt að landa 1/3 af leyfilegum heildarafla til manneldisvinnslu utan Íslands eða vinna til manneldis um borð þó ekki undir 4.000 tonnum.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofa sjávar, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. desember 2021.

Svandís Svavarsdóttir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.