Fara beint í efnið

Prentað þann 16. apríl 2024

Breytingareglugerð

1338/2019

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 907/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 206/2010 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra, þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Evrópusambandsins, og um kröfur varðandi heilbrigðisvottorð fyrir dýr og dýraafurðir.

1. gr.

25. og 26. töluliðir reglugerðarinnar verða svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1162 frá 1. júlí 2019 um breytingar á viðauka I og II við reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar fyrirmyndir að heilbrigðisvottorðum BOV-X, OVI-X, OVI-Y og RUM fyrir dýr og dýraafurðir og skrárnar yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði og hluta þeirra þaðan sem leyfður er aðflutningur til Sambandsins á tilteknum hóf- og klaufdýrum og nýju kjöti.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1762 frá 23. október 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 206/2010 að því er varðar að færa Sameinaða konungsríkið Stóra-Bretland og Norður-Írland og hjálendur krúnunnar á skrá yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem leyfður er aðflutningur á tilteknum dýrum og nýju kjöti til Sambandsins.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar sem nefnd er í 26. tölul. 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og á sama tíma fellur brott reglugerð nr. 426/2019 um (7.) breytingu á reglugerð nr. 907/2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. desember 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.