Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1330/2019

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð 372/2013 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 200/2012 varðandi það markmið Sambandsins að draga úr Salmonella enteritidis og Salmonella typhimurium í hópum holdakjúklinga, eins og kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003.

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 200/2012 frá 8. mars 2012 varðandi það markmið Sambandsins að draga úr Salmonella enteritidis og Salmonella typhimurium í hópum holdakjúklinga, eins og kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2160/2003. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2012, frá 26. október 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9, frá 7. febrúar 2013, bls. 247.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/268 frá 15. febrúar 2019 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 200/2010, (ESB) nr. 517/2011, (ESB) nr. 200/2012 og (ESB) nr. 1190/2012 að því er varðar tilteknar aðferðir við prófanir og sýnatöku vegna salmonellu í alifuglum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2019, frá 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 29. maí 2019, bls. 3.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 10. gr. laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. desember 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.