Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1223/2016

Reglugerð um heimild færeyskra skipa til veiða á kolmunna við Ísland á árinu 2017. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi lýtur að framkvæmd samninga sem íslensk stjórnvöld hafa gert við færeysk stjórn­völd um heimildir færeyskra skipa til veiða á kolmunna í fiskveiðilandhelgi Íslands á árinu 2017.

Allar kolmunnaveiðar innan fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu.

2. gr.

Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar með flotvörpu vestan 20°30´ V og innan línu fyrir Suður- og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 63°05,90´ N - 20°30,00´ V
  2. 63°11,40´ N - 19°07,30´ V
  3. 63°07,50´ N - 18°38,00´ V
  4. 63°09,00´ N - 18°27,00´ V
  5. 63°07,00´ N - 18°02,00´ V
  6. 63°12,50´ N - 17°00,00´ V
  7. 63°20,00´ N - 16°03,00´ V
  8. 63°22,50´ N - 15°51,00´ V
  9. 63°26,00´ N - 15°29,00´ V
  10. 63°30,70´ N - 15°00,00´ V
  11. 63°33,60´ N - 14°41,70´ V
  12. 63°43,40´ N - 13°53,00´ V
  13. 64°00,00´ N - 13°07,00´ V
  14. 64°21,70´ N - 12°17,30´ V
  15. 64°32,30´ N - 11°41,00´ V
  16. 65°00,00´ N - 11°28,00´ V
  17. 65°27,00´ N - 11°24,00´ V
  18. 66°06,00´ N - 11°33,00´ V
  19. 66°42,00´ N - 12°50,00´ V

og þaðan í réttvísandi 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru kolmunnaveiðar heimilar innan íslenskrar lögsögu vestan 27°30,00´ V.

3. gr.

Fiskiskipum sem leyfi hafa fengið til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, er skylt að halda afla­dagbækur um veiðarnar sem uppfylla ákvæði um afladagbækur samkvæmt kafla III og viðauka IV í reglum Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). Staðfestar upplýsingar um landaðan afla einstakra skipa hvers mánaðar, sundurliðaðar eftir fisktegundum og löndunardögum, ásamt afritum úr afladagbókum, skal senda Fiskistofu eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaða­mót.

Veiðarfæri sem ætluð eru til annarra veiða en kolmunnaveiða, skulu geymd í sérstakri veiðar­færa­geymslu.

4. gr.

Aðeins er þeim færeyskum fiskiskipum heimilt að stunda kolmunnaveiðar í flotvörpu innan íslenskrar lögsögu, sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti.

5. gr.

Um siglingu skips, á leið til veiðisvæðis áður en veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands hefjast og á leið út úr fiskveiðilandhelgi Íslands, gilda ákvæði reglugerðar um eftirlitsstaði erlendra skipa vegna veiða og siglinga í íslenskri fiskveiðilögsögu nr. 1133/2013, þar sem fram kemur staðsetning athugunarstaðanna. Heimilt er Landhelgisgæslu Íslands að ákveða að skipin skuli sigla inn og út úr efnahagslögsögunni á tilteknum athugunarstöðum og að þeim beri að tilkynna komu sína á þá með ákveðnum fyrirvara í samræmi við reglugerð nr. 1133/2013, um eftirlitsstaði erlendra skipa vegna veiða og siglinga í íslenskri fiskveiðilögsögu. Tímafrestir tilkynninga koma fram í reglugerð nr. 1170/2013, um rafrænar skeytasendingar, upplýsingagjöf og rafræn afladagbókaskil erlendra fiski­skipa í efnahagslögsögu Íslands.

6. gr.

Eftirlit með framkvæmd reglugerðar þessarar er í höndum Landhelgisgæslu Íslands, Fiskistofu og eftirlitsmanna í hennar þjónustu.

Fiskistofu er heimilt að setja veiðieftirlitsmenn um borð í veiðiskip sem leyfi hafa til veiða innan íslenskrar lögsögu. Skal útgerð skips sjá eftirlitsmönnum fyrir fæði og aðstöðu meðan þeir eru um borð í veiðiskipi og ennfremur greiða allan kostnað af veru þeirra um borð í skipinu.

Telji Landhelgisgæslan eða Fiskistofa að eftirlit samkvæmt reglugerð þessari geti ekki farið fram á sjó, skal hlutaðeigandi skipi skylt að hlíta fyrirmælum um að halda til nálægrar hafnar þar sem eftirlit getur farið fram.

7. gr.

Fiskistofa getur svipt skip leyfi til veiða innan fiskveiðilandhelginnar brjóti útgerð eða áhöfn skipsins eða aðrir þeir er í þágu útgerðar starfa gegn lögum sem um hlutaðeigandi veiðar gilda, reglugerð þessari eða ákvæðum milliríkjasamninga.

8. gr.

Skip sem veiðileyfi hafa skv. reglugerð þessari skulu að öðru leyti fylgja ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands.

9. gr.

Brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.

10. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi 1. janúar 2017. Jafn­framt fellur úr gildi reglugerð nr. 1211/2015, um heimild færeyskra skipa til veiða á kolmunna við Ísland á árinu 2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. desember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica