Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 30. ágúst 2022

1189/2021

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 920/2021, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2021/2022.

1. gr.

3. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða tilgreindur í tonnum, er sem hér segir:

Tegund Skel- og rækjubætur Byggðakvóti til fiskiskipa Byggðakvóti Byggðastofnunar Frístunda-veiðar Strandveiðar Línuívilnun Samtals
1. Þorskur 1.472 4.500 4.092 250 10.000 1.400 21.714
2. Ýsa 257 800 715 0 0 413 2.185
3. Ufsi 453 1.400 1.261 0 1.000 0 4.114
4. Steinbítur 51 155 141 0 0 177 524
5. Gullkarfi 199 300 553 0 100 15 1.167
6. Keila 8 43 23 0 0 15 89
7. Langa 26 96 71 0 0 20 213
Samtals: 2.466 7.294 6.856 250 11.100 2.040 30.006

2. gr.

1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Leyfilegur heildarafli tilgreindur í tonnum í eftirfarandi tegundum, á viðkomandi svæðum:

Tegund/Svæði Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar
1. Hörpudiskur
Breiðafjörður 93 5 88
2. Rækja á grunnslóð
Arnarfjörður 149 8 141

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. október 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Benedikt Árnason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.