Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1152/2020

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 200/2020, um innflutning hunda og katta.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Matvælastofnun getur þó heimilað innflutning á hundi eða ketti frá landi sem ekki telst til viðurkennds útflutningslands, sbr. viðauka I, ef um er að ræða búferlaflutninga og dýrið hefur verið í eigu og umsjá innflytjanda í a.m.k. sex mánuði fyrir innflutning. Þessu til staðfestingar skal innflytjandi leggja fram gögn sem Matvælastofnun metur gild. Hundur eða köttur sem fluttur er til Íslands á þessum forsendum skal uppfylla heilbrigðisskilyrði samkvæmt flokki 2, sbr. viðauka I.

2. gr.

Í stað viðauka I kemur nýr viðauki I sem birtur er með reglugerð þessari.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, ásamt síðari breytingum, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, ásamt síðari breytingum og lögum nr. 55/2013 um velferð dýra, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. nóvember 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Kolbeinn Árnason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.