Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

1148/2020

Reglugerð um (16.) breytingu á reglugerð nr. 41/2012 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 um setningu reglna um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heilahrörnunar.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 59. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1091 frá 26. júní 2019 um breytingu á viðauka IV við reglugerð (EB) nr. 999/2001 Evrópuþingsins og ráðsins að því er varðar kröfur fyrir útflutning á afurðum sem innihalda unnið dýraprótein úr jórturdýrum og öðrum dýrum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2020, frá 25. september 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, frá 29. október 2020, bls. 262.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995, um matvæli og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. nóvember 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.