1. gr.
Stjórnskipan.
Kolvetnisrannsóknasjóður er mennta- og rannsóknasjóður í tengslum við kolvetnisstarfsemi á Íslandi og er hann í vörslu iðnaðarráðherra. Stjórn sjóðsins skal skipuð einum fulltrúa hvers leyfishafa auk fulltrúa ríkisins sem iðnaðarráðherra skipar. Orkusjóður undir umsjón Orkustofnunar annast daglega umsýslu Kolvetnisrannsóknasjóðs. Dagleg umsýsla skilgreinist sem upplýsingagjöf, móttaka styrkumsókna, mat og úrvinnsla styrkumsókna og eftirlit með verkefnum.
2. gr.
Hlutverk Kolvetnisrannsóknasjóðs.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að því að efla rannsóknir og vísindalega þekkingu á kolvetnisauðlindum á landgrunni Íslands og á skilyrðum til myndunar þeirra, ásamt rannsóknum á tækni sem beita má við þær aðstæður er þar ríkja.
Þetta skal gert meðal annars með því:
3. gr.
Hlutverk stjórnar Kolvetnisrannsóknasjóðs.
Stjórn Kolvetnisrannsóknasjóðs úthlutar styrkjum úr sjóðnum í samræmi við hlutverk sjóðsins eins og það er skilgreint í reglugerð þessari. Fulltrúi ríkisins hefur neitunarvald séu fyrirhugaðar ákvarðanir stjórnarinnar ekki í samræmi við hlutverk og markmið sjóðsins eins og þau eru skilgreind í reglugerð þessari og í verklagsreglum settum á grundvelli hennar sbr. 2. mgr. hér að neðan.
Stjórnin skal setja sér verklagsreglur er kveða á um hvernig hagað skuli meðferð styrkumsókna úr sjóðnum.
Í reglugerð þessari skal m.a. koma fram hvaða almennu viðmið stjórnin hefur þegar tekin er ákvörðun um tillögugerð að styrkveitingum úr sjóðnum. Að auki skulu tilgreind önnur skilyrði er stjórnin telur þörf á.
Verklagsreglur stjórnarinnar vegna úthlutana skulu staðfestar af ráðherra og birtar opinberlega.
4. gr.
Tekjur og gjöld.
Tekjur Kolvetnisrannsóknasjóðs eru:
Stjórn sjóðsins er heimilt að semja við aðila, sem hafa leyfi til fjárvörslu lögum samkvæmt, um umsjón og trygga vörslu fjár sjóðsins. Fé sjóðsins skal ávallt vera tryggilega sérgreint.
Allur kostnaður við rekstur Kolvetnisrannsóknasjóðs greiðist af tekjum sjóðsins.
5. gr.
Gerð fjárhagsáætlana og ársreikninga.
Stjórn sjóðsins skal á ári hverju semja tekju- og greiðsluáætlun í samræmi við hlutverk sjóðsins og ætlaðar tekjur. Skal áætlun þessi send ráðherra og Orkustofnun.
Stjórn sjóðsins skal gera eða láta útbúa ársreikning fyrir sjóðinn eigi síðar en 1. mars ár hvert fyrir næstliðið ár og leggja hann fyrir stjórnina til staðfestingar.
6. gr.
Eftirlit.
Stjórn sjóðsins og Orkustofnun hafa eftirlit með þeim verkefnum sem sjóðurinn veitir fé til. Nánar skal kveðið á um það í verklagsreglum.
7. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 10. gr. laga nr. 13/2001 um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis, tekur þegar gildi.
Iðnaðarráðuneytinu, 21. janúar 2009.
Össur Skarphéðinsson.
Kristján Skarphéðinsson.