Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1106/2017

Reglugerð um veiðar úr úthafskarfastofnum árið 2018. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa vestan 22. gráðu vestlægrar lengdar úr úthafskarfastofnum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), utan þeirra svæða sem falla undir fiskveiðilögsögu samningsaðila og innan fiskveiðilandhelgi Grænlands, í samræmi við samning þjóðanna þess efnis. Ennfremur tekur reglugerð þessi til úthafskarfaveiða fiskiskipa, sem leyfi hafa til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, er þau stunda veiðar á úthafskarfa með flotvörpu utan línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 64°17´N - 30°23´V (við miðlínu milli Íslands og Grænlands)
  2. 64°45´N - 28°30´V
  3. 62°50´N - 25°45´V
  4. 61°55´N - 26°45´V
  5. 61°00´N - 26°30´V
  6. 60°48´N - 26°51´V (við lögsögumörk á Reykjaneshrygg)

Þá tekur reglugerðin til veiða á úthafskarfa sem veiddur er á svæðum 1f, 2g, 2h, 2j og 3k á samn­ingssvæði Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðistofnunarinnar, NAFO. Á árinu 2018 eru veiðar á úthafs­karfa óheimilar á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafsfiskveiðistofnunarinnar.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á úthafskarfa skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á úthafskarfa í flotvörpu, sem hafa aflamark í úthafskarfa, sbr. 3. og 4. gr.

3. gr.

Fyrir tímabilið 1. janúar 2018 til 31. desember 2018 er leyfilegur heildarafli sem hér segir:

A B C
Lestir Lestir Lestir
2.016 107 1.909

Skýringar á töflu:

  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Skerðing skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  3. Fiskistofa úthlutar til skipa á grundvelli aflahlutdeildar.

Veiðar á úthafskarfa eru heimilar frá og með 10. maí og eru einungis leyfðar innan svæðis sem markast af eftirfarandi punktum:

  1. 64°45´N - 28°30´V
  2. 62°50´N - 25°45´V
  3. 61°55´N - 26°45´V
  4. 61°00´N - 26°30´V
  5. 59°00´N - 30°00´V
  6. 59°00´N - 34°00´V
  7. 61°30´N - 34°00´V
  8. 62°50´N - 36°00´V
  9. 64°45´N - 28°30´V

Á grundvelli aflahlutdeildar í úthafskarfa skal Fiskistofa úthluta hverju skipi aflamarki, eins og skilgreint er í 1. mgr. þessarar greinar.

4. gr.

Heimilt er að framselja aflahlutdeild og aflamark milli íslenskra fiskiskipa, samkvæmt þeim reglum, sem almennt gilda um framsal aflahlutdeildar og aflamarks samkvæmt lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Ákvæði 11. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, gilda ekki um afla­mark sem úthlutað er í úthafskarfa samkvæmt þessari reglugerð. Þó er heimilt að flytja allt að 5% af aflamarki úthafskarfa frá einu fiskveiðiári yfir á það næsta. Þá er heimilt að veiða 5% umfram aflamark í úthafskarfa, enda dregst sá umframafli frá við úthlutun aflamarks næsta fiskveiði­árs á eftir.

5. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á samningssvæði NEAFC sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 1. mgr., bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða skipsins á 4 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.

6. gr.

Um tilkynningar við úthafskarfaveiðar skv. þessari reglugerð, bæði innan íslensku lögsögunnar og á alþjóðlegu hafsvæði, gilda ákvæði reglugerðar nr. 285/2014, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), með síðari breytingum.

7. gr.

Stundi skip úthafskarfaveiðar og almennar togveiðar í lögsögu Íslands í sömu veiðiferð skal halda úthafskarfa aðgreindum frá öðrum afla um borð í veiðiskipi og skal hann veginn og skráður sérstak­lega við löndun.

Er afli reiknast til aflamarks skal miðað við 94% nýtingu sé úthafskarfa landað slægðum með haus, 59% nýtingu sé úthafskarfa landað hausskornum, 30% nýtingu sé honum landað flökuðum með roði og beinum, 27% nýtingu sé honum landað flökuðum, roðlausum með beinum.

Þegar úthafskarfi er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,83.

8. gr.

Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukkustundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan úthafskarfaafla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram úthafskarfaafli skipsins miðað við afla upp úr sjó sundurliðaður eftir afla innan fiskveiðilandhelgi Íslands, afla á alþjóðlegu hafsvæði og afla innan fiskveiðilandhelgi Grænlands.

Sýni skulu tekin úr afla, a.m.k. tvö í hverri veiðiferð, og skal skrá sýnatökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu að lágmarki vera 50 til 100 fiskar sem valdir eru af handahófi. Ef togað er á mismunandi dýpi í veiðiferðinni er æskilegt að fá sýni frá mismunandi dýpi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnun í Reykjavík eða útibúum stofnunarinnar að lokinni veiðiferð.

9. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viður­lögum samkvæmt lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breyt­ingum, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar með síðari breytingum og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands, með síðari breytingum.

10. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin tekur gildi 1. janúar 2018. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 1196/2016, um veiðar úr úthafskarfastofnum 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. desember 2017.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica