Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1086/2017

Reglugerð um bann við veiðum á ígulkerjum á austursvæði í innanverðum Breiðafirði. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 15. desember 2017 eru allar veiðar á ígulkerjum óheimilar á veiðisvæði í innanverðum Breiðafirði, svokölluðu austursvæði. Bannsvæðið afmarkast af svæði sem er austan við línu sem dregin er milli eftirgreindra hnita 65°08ʹN, 22°31ʹV og 65°04ʹN, 22°25ʹV.

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2018.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. desember 2017.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica