Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1082/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 940/1999, um löggiltar iðngreinar.

1. gr.

Í stað orðsins "netagerð" í 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur: veiðarfæratækni.

2. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Við endurútgáfu sveinsbréfa og meistarabréfa í löggiltri iðngrein sem breytt hefur verið um heiti á skal notast við heiti iðngreinarinnar samkvæmt gildandi reglugerð.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. 1. mgr. 8. gr. iðnaðarlaga, nr. 42/1978, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. nóvember 2019.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.