Sjávarútvegsráðuneyti

840/2005

Reglugerð um friðun steinbíts á hrygningartíma á Látragrunni. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 24. september 2005 til og með 31. mars 2006 eru allar veiðar bannaðar á svæði á Látragrunni, sem markast af línum, sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 65°03´00 N - 26°42´00 V

2. 65°10´00 N - 26°42´00 V

3. 65°10´00 N - 25°43´00 V

4. 65°03´00 N - 25°50´00 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 20. september 2005.


F. h. r.

Vilhjálmur Egilsson.
Jón B. Jónasson.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica