Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 3. mars 2023

1073/2018

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 481/2017 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist við nýr töluliður, 28. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2329 frá 14. desember 2017 um breytingu og leiðréttingu á reglugerð (EB) nr. 1235/2008 um ítarlegar reglur um framkvæmd reglugerðar ráðsins (EB) nr. 834/2007 að því er varðar fyrirkomulag á innflutningi lífrænna afurða frá þriðju löndum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 175/2018, frá 21. september 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 11. október 2018, bls. 756.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 7. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 162/1994 um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. nóvember 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.