Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1069/2017

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði við Austurland. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 8. desember 2017 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði úti fyrir Austur­landi, á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

          1. 65°05,40ʹ N - 13°21,00ʹ V
          2. 65°05,40ʹ N - 13°33,00ʹ V
          3. 64°43,20ʹ N - 13°53,40ʹ V
          4. 64°43,20ʹ N - 13°41,40ʹ V
          5. 65°05,40ʹ N - 13°21,00ʹ V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2018.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. desember 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica