Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1068/2018

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði við Aðalvík. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 30. nóvember 2018 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði við Aðalvík sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

  1. 66°21,00′N - 23°03,00′V
  2. 66°21,00′N - 23°15,00′V
  3. 66°25,80′N - 23°15,00′V
  4. 66°25,80′N - 23°03,00′V
  5. 66°21,00′N - 23°03,00′V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. nóvember 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica