Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

1123/2008

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III B og IV B við tollalög nr. 88/2005, með síðari breytingum í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnr.

stk.

%

kr./stk.

0602.2000

Tré, runnar og búskar, einnig ágrætt sem ber æta ávexti og hnetur

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0602.3000

Alparósir og glóðarrósir, einnig ágræddar

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

Rósir, einnig ágræddar:

0602.4010

Í smásöluumbúðum

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0602.4090

Aðrar

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0602.9030

Matjurta- og jarðarberjaplöntur

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

Annað: Útiplöntur: - Tré, runnar og búskar

0602.9041

Skógartré

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

Annað:

0602.9045

Græðlingar með rót og ungplöntur

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0602.9049

Annars

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

Aðrar útiplöntur:

0602.9051

Fjölærar jurtkenndar plöntur

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

Græðlingar með rót og ungplöntur, þó ekki kaktusar:

0602.9071

Til framhaldsræktunar í garðyrkjustöðvum í a.m.k. tvo mánuði:

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0602.9079

Annars

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

Blómstrandi plöntur með knúppum eða blómum, þó ekki kaktusar:

0602.9091

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.01.-30.06.09

2.000

30

0

0602.9091

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.07.- 31.12.09

1.500

30

0

0602.9092

Aðrar

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

Aðrar:

0602.9093

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.01.-30.06.09

2.500

30

0

0602.9093

Pottaplöntur til og með 1 metri á hæð, þó ekki þykkblöðungar og plöntur af ættkvíslinni Bromilea og plönturnar Erica Gracilis og Calluna

01.07.-31.12.09

1.800

30

0

0602.9099

Annars

01.01.-31.12.09

30

0

Lifandi:

0603.1202

Innflutningur á öðrum tíma (nellikur)

01.05.-30.11.09

ótilgr.

15

48

0603.1300

Brönugrös (orchids)

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0603.1400

Tryggðablóm (Chrysanthemums)

01.01.-30.06.09

9.000

30

0

0603.1400

Tryggðablóm (Chrysanthemums)

01.07.-31.12.09

6.500

30

0

0603.1901

Ættkvíslirnar Protea, Banksia, Leucadendron og Brunia

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0603.1902

Afskornar greinar með berjum og ávöxtum, óætum af ættkvíslunum: Ligustrum, Callicarpa, Gossypium, Hypericum, Ilex og Symphoricarpos

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0603.1903

Forsythia (páskagreinar)

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0603.1905

Innflutningur á öðrum tíma (lokaskegg, flamingóblóm, fuglamjólk og paradísarfuglablóm.)

01.05.-30.11.09

ótilgr.

15

48

0603.1909

Annars (afskorin blóm)

01.01.-30.06.09

166.250

30

0

0603.1909

Annars (afskorin blóm)

01.07.- 31.12.09

118.750

30

0

Annað:

0604.9101

Jólatré, án rótar

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0604.9102

Jólatrésgreinar

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0604.9109

Annað

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

0604.9900

Annars

01.01.-31.12.09

ótilgr.

30

0

Við innflutning á vörum sem falla undir þau tollskrárnúmer þar sem vörumagn er ekki tilgreint skal gilda sá verð- og/eða magntollur sem tilgreindur er í 1. mgr. yfir tilgreint tímabil. Fyrir þau tollskrárnúmer sem vörumagn er tilgreint gildir tiltekinn verð- og/eða magntollur samkvæmt útgefnum tollkvótum.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.

Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglu­gerðarinnar. Við úthlutun á tollkvótum sem fellur undir tollskrárnúmer þar sem vörumagn er tilgreint skal auglýsa eftir umsóknum um tollkvóta.

4. gr.

Verði umsóknir um tollkvóta í þeim tollskrárnúmerum þar sem magn er tilgreint meiri en það magn sem auglýst er skal leita tilboða í tollkvóta. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátrygginga­félags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 189/1990, um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 65. gr. og 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. og 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2009.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 28. nóvember 2008.

F. h. r.
Ólafur Friðriksson.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica