Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1046/2017

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir stafliðir, k- og l-liður, sem verða svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/172 frá 1. febrúar 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar vinnslubreytur fyrir ummyndun aukaafurða úr dýrum í lífgas eða moltu, skilyrði fyrir innflutningi á gæludýrafóðri og fyrir útflutningi á unnum húsdýraáburði. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 155/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 71.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/786 frá 8. maí 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar skilgreiningar á fiskimjöli og fiskilýsi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 155/2017, frá 22. september 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 19. október 2017, bls. 429.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og 17. gr. a laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, öll með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. nóvember 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.