Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1035/2017

Reglugerð um bann við hvalveiðum á tilteknum svæðum.

1. gr.

Frá gildistöku reglugerðar þessarar eru allar hvalveiðar bannaðar á eftirgreindum svæðum:

A. Á Faxaflóa innan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 64°04,90′ N - 22°41,4′ V (Garðskagavita).
  2. 64°46,60′ N - 22°36,3′ V (Skógarnes).

B. Á Eyjafirði og Skjálfandaflóa innan línu sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 66°11,6′ N - 18°49,3′ V (Siglunesviti).
  2. 66°17,8′ N - 17°06,8′ V (Lágey).
  3. 66°12,4′ N - 17°08,7′ V (Tjörnesviti).

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 10. gr. laga nr. 26/1949, um hvalveiðar, með síðari breytingum.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 4. gr. laga nr. 26/1949, um hvalveiðar, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott reglugerð nr. 997/2017, um bann við hvalveiðum á tilteknum svæðum.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. nóvember 2017.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Kristján Skarphéðinsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.