Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1030/2018

Reglugerð um bann við veiðum á ígulkerjum á vestursvæði í innanverðum Breiðafirði. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 24. nóvember 2018 eru allar veiðar á ígulkerjum óheimilar á veiðisvæði í innanverðum Breiðafirði, svokölluðu vestursvæði. Bannsvæðið afmarkast af svæði sem er austan við línu, sem dregin er milli hnitanna 65°10´N, 22°40´V og 65°00´N, 22°40´V og vestan við línu sem dregin er milli hnitanna 65°08´N, 22°31´V og 65°04´N, 22°25´V.

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. nóvember 2018.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica