Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1026/2018

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. reglugerðar þessarar úthlutar sjávarútvegs- og land­bún­aðar­ráðherra tollkvótum samkvæmt sérstökum samningi milli Íslands og Noregs um viðskipti með landbúnaðarvörur, samkvæmt 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993 og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005. Reglugerð þessi gildir um innflutning á smurosti frá Noregi og með upprunavottorð þaðan.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

  Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Úr tollskrárnr.     kg % kr./kg
0406.3000 Smurostur 01.01. - 31.12.19 13.000 0 0

Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabilsins.

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglugerðarinnar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, spari­sjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðs­gjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðaryfirlýsingar að greiða andvirði toll­kvóta á reikning fjársýslunnar og láta kvittun fylgja tilboðsgögnum.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun skv. 1. mgr. er ekki framseljanleg.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, með síðari breytingum.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breyt­ingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2019.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. nóvember 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Elísabet Anna Jónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica