Sjávarútvegsráðuneyti

1/2007

Reglugerð um togveiðar á kolmunna 2007. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa á kolmunna á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) í fiskveiðilögsögu Íslands og í lögsögum þeirra landa, þar sem íslensk skip hafa rétt til að veiða samkvæmt samn­ingum. Á árinu 2007 er íslenskum skipum heimilt að veiða 299,710 þús. lestir af kol­munna og skal Fiskistofa skipta því heildarmagni milli þeirra á grundvelli afla­hlutdeildar þeirra.

Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 10% yfir aflamarki í kolmunna á árinu 2007 og dregst sá umframafli frá aflamarki þess á árinu 2008. Þá er heimilt að flytja allt að 10% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá árinu 2007 til ársins 2008.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu. Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda flotvörpuveiðar á kolmunna, sem hafa aflamark í kolmunna.

3. gr.

Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar með flotvörpu vestan 20°30¢ V og innan línu fyrir Suður- og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

 1. 63°05,90 N - 20°30,00 V
 2. 63°11,40 N - 19°07,30 V
 3. 63°07,50 N - 18°38,00 V
 4. 63°09,00 N - 18°27,00 V
 5. 63°07,00 N - 18°02,00 V
 6. 63°12,50 N - 17°00,00 V
 7. 63°20,00 N - 16°03,00 V
 8. 63°22,50 N - 15°51,00 V
 9. 63°26,00 N - 15°29,00 V
10. 63°30,70 N - 15°00,00 V
11. 63°33,60 N - 14°41,70 V
12. 63°43,40 N - 13°53,00 V
13. 64°00,00 N - 13°07,00 V
14. 64°21,70 N - 12°17,30 V
15. 64°32,30 N - 11°41,00 V
16. 65°00,00 N - 11°28,00 V
17. 65°27,00 N - 11°24,00 V
18. 66°06,00 N - 11°33,00 V
19. 66°42,00 N - 12°50,00 V

og þaðan í réttvísandi 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru kolmunnaveiðar heimilar innan íslenskrar lösögu vestan 28°00 V.

4. gr.

Íslenskum skipum sem leyfi hafa fengið til kolmunnaveiða með flotvörpu er skylt að halda afladagbækur um veiðarnar sbr. reglugerð nr. 303/1999 um afladagbækur. Þar skal fram koma m.a. veiðisvæði, veiðitími og afli í hverju togi. Skal Fiskistofu sent afrit af afladagbókunum eigi síðar en 14 dögum eftir hver mánaðamót eða eftir að veiðum lýkur.

Þegar kolmunni er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,05

5. gr.

Kolmunnasýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýnatökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera 100-200 stykki af kolmunna sem valin eru af handahófi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnuninni í Reykjavík eða útibúum stofnunarinnar að lokinni veiði­ferð.

6. gr.

Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda kolmunnaveiðar í flotvörpu sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.

7. gr.

Um tilkynningar við kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 477/1999, um veiðieftirlit á samningssvæði (NEAFC) Norðaustur-Atlantshafs­fiskveiðinefndarinnar með síðari breytingum og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsög­unnar sem og veiða í færeyskri lögsögu. Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lög­sögunnar fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.

8. gr.

Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukku­stundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan kolmunna­afla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram kolmunnaafli skipsins sundurliðaður eftir afla innan fiskveiðilandhelgi Íslands, afla á alþjóðlegu hafsvæði og afla innan fiskveiðilandhelgi Færeyja.

9. gr.

Kolmunnaafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiski­stofu að landa kolmunnaafla og kolmunnaafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftir­lit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiski­stofu að landa óvigtuðum kolmunna um borð í vinnsluskip og flutninga­skip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiski­stofu. Sækja skal um leyfi til löndunar kolmunna utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætlað magn kolmunna. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endan­legar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda kol­munnans eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir. Um vigtun á kolmunna gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar um vigtun sjávarafla.

10. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum III. kafla laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða.

11. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og ákvæðum laga nr. 116, 10 ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 2. janúar 2007.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica