Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 13. nóv. 2019

987/2019

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði út af Austurlandi, norðursvæði.

1. gr.

Frá 13. nóvember 2019 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði út af Austurlandi, norðursvæði, sem afmarkast að eftirfarandi hnitum:

  1. 65°00,00 N - 13°00,00 V
  2. 65°00,00 N - 15°00,00 V
  3. 65°30,00 N - 15°00,00 V
  4. 65°30,00 N - 13°00,00 V
  5. 65°00,00 N - 13°00,00 V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2020.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. nóvember 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.