Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

951/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 770/2006 um veiðar á íslenskri sumargotssíld. - Brottfallin

1. gr.

Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Þrátt fyrir bann við síldveiðum með flotvörpu samkvæmt þessari grein eru veiðar á íslenskri sumargots­síld heimilar í friðunarhólfi vestur af landinu sem tilgreint er í 1. og 2. tl. 1. gr. reglu­gerðar nr. 310/2007, um friðunarsvæði við Ísland. 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. október 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica