Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

938/2018

Reglugerð um heimild til flutnings á allt að 10% af aflamarki í Snæfellsrækju frá fiskveiðiárinu 2017/2018 yfir á fiskveiðiárið 2018/2019. - Brottfallin

1. gr.

Heimilt er að flytja allt að 10% af aflamarki í Snæfellsrækju frá fiskveiðiárinu 2017/2018 yfir á fiskveiðiárið 2018/2019.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. október 2018.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Erna Jónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica