Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

931/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 401/2012 um fiskeldi. - Brottfallin

Stofnreglugerð:

Felld brott með:

1. gr.

Bráðabirgðaákvæði II við reglugerðina verður svohljóðandi:

Matvælastofnun er heimilt að breyta eldistegundum í fiskeldi í gildandi rekstrarleyfum fram til 31. desember 2015. Þó er óheimilt að breyta eldistegund gildandi rekstrarleyfis í rekstrarleyfi sjó­kvía­eldis til laxeldis. Skilyrði fyrir afgreiðslu Matvælastofnunar á slíkri umsókn er að rekstrar­leyfis­hafi sýni fram á að rekstur hans hafi verið slysalaus síðastliðin fimm ár eða frá því að rekstur hófst.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 71/2008, um fiskeldi, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. október 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Ásta Einarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica