Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 16. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 30. ágúst 2022

920/2021

Reglugerð um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2021/2022.

I. KAFLI Veiðileyfi í atvinnuskyni.

1. gr.

Veiðar í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu leyfi Fiskistofu. Um veitingu leyfa til veiða í atvinnuskyni fer eftir 5. gr. laga um stjórn fiskveiða.

II. KAFLI Heildarafli, ráðstöfun og veiðitímabil.

2. gr.

Fiskistofa úthlutar aflamarki til fiskiskipa á grundvelli aflahlutdeildar fiskiskips í viðkomandi tegund.

Leyfilegur heildarafli tilgreindur í tonnum í óslægðum botnfiski, íslenskri sumargotssíld og óslitnum humri, frádráttur sbr. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða og úthlutun Fiskistofu á grundvelli aflahlutdeildar er sem hér segir:

Tegund Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar
1. Þorskur 220.417 11.682 208.735
2. Ýsa 41.229 2.185 39.044
3. Ufsi 77.381 4.101 73.280
4. Steinbítur 8.933 473 8.460
5. Gullkarfi 28.554 1.513 27.041
6. Keila 1.532 81 1.451
7. Langa 3.525 187 3.338
8. Djúpkarfi 7.926 420 7.506
9. Litli karfi 609 32 577
10. Grálúða 15.031 797 14.234
11. Sandkoli 313 17 296
12. Skrápflúra 25 1 24
13. Skarkoli 7.805 414 7.391
14. Langlúra 1.025 54 971
15. Þykkvalúra/sólkoli 1.288 68 1.220
16. Skötuselur 402 21 381
17. Humar 0 0 0
18. Íslensk sumargotssíld 72.239 3.829 68.410
19. Blálanga 334 18 316
20. Hlýri 377 20 357
21. Gulllax 9.244 490 8.754
22. Úthafsrækja 5.136 272 4.864
23. Rækja við Snæfellsnes 393 21 372

Ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða tilgreindur í tonnum, er sem hér segir:

Tegund Skel- og rækjubætur Byggðakvóti til fiskiskipa Byggðakvóti Byggðastofnunar Frístunda-veiðar Strandveiðar Línuívilnun Samtals
1. Þorskur 1.472 3.626 4.092 250 10.000 1.400 20.840
2. Ýsa 257 800 715 0 0 413 2.185
3. Ufsi 453 1.400 1.261 0 1.000 0 4.114
4. Steinbítur 51 155 141 0 0 177 524
5. Gullkarfi 199 300 553 0 100 15 1.167
6. Keila 8 43 23 0 0 15 89
7. Langa 26 96 71 0 0 20 213
Samtals: 2.466 6.420 6.856 250 11.100 2.040 29.132

Aflamark í botnfiski miðast við slægðan fisk með haus nema í gullkarfa, litla karfa, gulllaxi, og djúpkarfa sem miðast við óslægðan fisk. Veiðitímabil botnfisks er frá og með 1. september til og með 31. ágúst næsta árs.

Aflamark í uppsjávarfiski miðast við óslægðan fisk.

Aflamark í sandkola og skrápflúru miðast við afla sem veiddur er á svæði sunnan 64°30´N við Austurland og sunnan við línu sem dregin er réttvísandi vestur úr Öndverðarnesi. Afli í sandkola og skrápflúru sem veiddur er norðan þessara lína reiknast ekki til aflamarks sbr. 2. mgr. 12. gr.

Heimilt er að veiða rækju við Snæfellsnes frá og með 1. maí til og með 15. mars næsta árs.

3. gr.

Leyfilegur heildarafli tilgreindur í tonnum í eftirfarandi tegundum, á viðkomandi svæðum:

Tegund/Svæði Leyfilegur heildarafli Dregið frá heildarafla skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Fiskistofa úthlutar aflamarki á grundvelli aflahlutdeildar
1. Hörpudiskur
Breiðafjörður 93 5 88
2. Rækja á grunnslóð
Arnarfjörður 149 8 141

Veiðitímabil rækju á grunnslóð er samkvæmt reglugerð um veiðar á rækju. Heimilt er með tilkynningu til leyfishafa að breyta veiðitíma á ákveðnum veiðisvæðum rækju á grunnslóð, að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna.

III. KAFLI Skiptimarkaður með aflamark.

4. gr.

Fiskistofa skal sjá um framkvæmd skipta, sbr. 6. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða og annast skiptimarkað fyrir aflamark.

Við framkvæmd skiptimarkaðar skal Fiskistofa auglýsa hverju sinni eftir tilboðum í það magn aflamarks sem ráðherra ákveður. Auglýsa skal eftir tilboðum í tiltekið magn aflamarks í einstakri tegund í skiptum fyrir aflamark í einni af eftirfarandi tegundum: Þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa, svo lengi sem aflamark er til ráðstöfunar. Tilboðsfrestur og -skilmálar skulu birtast með auglýsingu á heimasíðu Fiskistofu. Þegar tilboð berst Fiskistofu er það bindandi fyrir aðila. Þó er aðila heimilt að afturkalla tilboð sitt enda berist afturköllunin Fiskistofu áður en tilboðsfrestur er liðinn. Fiskistofu er einungis heimilt að veita upplýsingar um tilboð eftir að tilboðsfrestur er liðinn og skal þá birta upplýsingarnar á heimasíðu Fiskistofu. Birta skal einungis upplýsingar um samþykkt tilboð.

Fiskistofa ákveður form tilboða. Í tilboði skal útgerðaraðili skips tilgreina magn þeirrar tegundar sem boðið er í og magn þeirrar tegundar sem boðið er í skiptum, svo og önnur atriði sem Fiskistofa ákveður.

Fiskistofa skal samþykkja það tilboð sem hæst er. Við mat tilboða skal Fiskistofa, þar sem tilboð geta falið í sér mismunandi tegundir sem endurgjald, miða við meðalverð tegunda í viðskiptum með aflamark, sem birt er á vef Fiskistofu, undanfarna 30 daga eða eftir atvikum síðasta mánuð sem viðskipti voru með tegund. Ef hæstu tilboð eru jöfn skal magni skipt hlutfallslega á milli tilboðsgjafa. Ef hæsta tilboð er aðeins í hluta þess magns sem í boði er skal það samþykkt. Síðan skal næst hæsta tilboðið samþykkt, þar til því aflamarki sem var í boði hefur verið ráðstafað.

Ef aflamark í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu eða gullkarfa sem látið hefur verið í skiptum, er umfram það aflamark sem innheimta skal, er heimilt að bjóða þær tegundir á skiptimarkaði.

Óheimilt er að framselja aflaheimildir í makríl sem keyptar eru á skiptimarkaði.

Aflamark sem látið er í skiptum telst ekki flutt af skipi í skilningi 15. gr. laga um stjórn fiskveiða.

IV. KAFLI Skipting leyfilegs afla.

5. gr.

Veiðiheimildum í þeim tegundum sem heildarafli er takmarkaður af, skv. 2. og 3. gr. skal skipt milli einstakra skipa í samræmi við aflahlutdeild eða krókaaflahlutdeild þeirra í viðkomandi tegund. Úthlutað aflamark/krókaaflamark hvers skips í hverri einstakri tegund ræðst annars vegar af aflahlutdeild/krókaaflahlutdeild skipsins í viðkomandi tegund en hins vegar af úthlutuðu heildaraflamarki í tegundinni skv. 2. og 3. gr.

V. KAFLI Krókaaflamarksbátar.

6. gr.

Þeir bátar einir geti öðlast veiðileyfi með krókaaflamarki sem eru styttri en 15 metrar að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um stjórn fiskveiða. Óheimilt er að stækka bátana þannig að þeir verði stærri en þessu nemur. Bátum, sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, skal úthlutað krókaaflamarki í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu, blálöngu, litla karfa, hlýra og gullkarfa á grundvelli krókaaflahlutdeildar þeirra. Um krókaaflahlutdeild og krókaaflamark gilda sömu reglur um útreikning, nýtingu og framsal og gilda um aflahlutdeild og aflamark nema öðruvísi sé kveðið á um í lögum eða reglugerð þessari.

Bátum sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, er einungis heimilt að stunda veiðar með línu og handfærum nema annað leiði af lögum og reglum sem gilda um tilteknar veiðar. Afli sem fæst við slíkar veiðar reiknast til aflamarks bátsins.

Heimilt er að flytja til krókaaflamarksbáts aflamark í öðrum tegundum botnfisks en tilgreindar eru í 1. mgr. þessarar greinar. Einnig er heimilt að flytja aflamark í ufsa og þorski frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í ýsu. Jafnframt er heimilt að flytja aflamark í steinbít frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í þorski, ýsu og löngu. Veiði bátur aðrar tegundir en hann hefur krókaaflamark í, skal skerða aflamark hans í öðrum tegundum, skv. 1. mgr. 11. gr. laga um stjórn fiskveiða og reglum settum samkvæmt þeim ákvæðum. Hverjum báti skal þó heimilt, sbr. 7. gr. laganna, án þess að til skerðingar komi, að veiða allt að 2,0% af heildarafla sínum í kvótabundnum botnfisktegundum, öðrum en þeim sem tilgreindar eru í 1. mgr., þó þannig að afli í einni tegund fari aldrei yfir 1% af heildarafla bátsins.

VI. KAFLI Útreikningur aflamarks.

7. gr.

Þegar umreikna skal óslægðan fisk í slægðan skal margfalda magn með slægingarstuðli og þegar umreikna skal slægðan fisk í óslægðan skal deila magni með slægingarstuðli fyrir þær tegundir sem tilgreindar eru í töflunni hér að neðan:

Tegund Slægingarstuðull
Þorskur 0,84
Ýsa 0,84
Ufsi 0,84
Grálúða 0,92
Skarkoli 0,92
Sandkoli 0,92
Skrápflúra 0,92
Langlúra 0,92
Þykkvalúra 0,92
Steinbítur 0,90
Keila 0,90
Skötuselur 0,90
Langa 0,80
Blálanga 0,80

Þegar umreikna skal slitinn humar yfir í óslitinn skal margfalda vegið magn humarhala með 3,25. Þegar umreikna skal óslitinn humar yfir í slitinn humar skal deila í vegið magn óslitins humars með 3,25.

Við umreikning landaðra grásleppuhrogna í heila grásleppu til skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við margföldunarstuðulinn 3,4.

Þorskur styttri en 50 cm (27 cm hausaður) og ufsi styttri en 50 cm (31 cm hausaður), ýsa styttri en 45 cm (26,5 cm hausuð) og gull- og djúpkarfi styttri en 33 cm teljast að hálfu til aflamarks, enda fari afli undir áðurgreindum stærðarmörkum ekki yfir 10% af viðkomandi tegund í veiðiferð. Undirmálsafla skal haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn sérstaklega af löggiltum vigtarmanni. Þó er heimilt að ákvarða magn undirmáls í gull- og djúpkarfaafla við endurvigtun í vinnsluhúsi. Skal gullkarfa og djúpkarfa sem þannig er flokkaður frá í vinnsluhúsi til ákvörðunar á magni undirmáls, haldið aðgreindum frá öðrum afla. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda þó ekki um afla sem flakaður er um borð í veiðiskipi. Hausaðan fisk skal mæla frá sporðsenda að gotrauf.

Komi afli í veiðarfæri skips, sem er selbitinn eða skemmdur á annan hátt, sem ekki er unnt að komast hjá við tilteknar veiðar, skal ekki reikna þann afla til aflamarks enda sé honum haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega. Þennan afla er eingöngu heimilt að nýta til bræðslu.

Heimilt er skipstjóra að ákveða að hluti aflans reiknist ekki til aflamarks skipsins. Þessi heimild takmarkast við 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla, sem viðkomandi skip veiðir á fiskveiðiárinu og er bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Aflanum sé haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega.
  2. Aflinn sé seldur á uppboði á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla og andvirði hans renni til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins, sbr. lög um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.
  3. Heimildin skiptist í fjögur þriggja mánaða tímabil á fiskveiðiárinu. Ekki er heimilt að flytja ónýttar heimildir milli tímabilanna. Þó má miða ýsuafla sem fæst sem meðafli eða meðafla við grásleppuveiðar, við heimild fiskveiðiársins í heild, enda sé sá afli gerður upp í lok þess.

Um heimild til veiða umfram aflamark í einstökum fisktegundum sem skerðir aflamark annarra botnfisktegunda hlutfallslega gilda ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga um stjórn fiskveiða.

8. gr.

Þegar meta skal til hvaða fiskveiðiárs tiltekinn afli telst, skal miða við hvenær afla er landað hér á landi. Þannig telst afli sem landað er 1. september 2021 eða síðar til fiskveiðiársins 2021/2022, enda þótt veiðiferð hefjist fyrir upphaf þess fiskveiðiárs.

Sigli skip með eigin afla á erlendan markað, skal afli teljast til þess fiskveiðiárs, þá er skipið sannanlega hættir veiðum fyrir siglingu.

VII. KAFLI Framsal aflamarks og aflahlutdeildar.

9. gr.

Þegar fiskiskipi hefur verið úthlutað aflamarki, er heimilt að flytja aflamarkið á milli fiskiskipa enda leiði flutningurinn ekki til þess að veiðiheimildir skipsins verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. Krókaaflamark verður aðeins flutt til báts, sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og uppfyllir stærðarmörk sem kveðið er á um í 7. gr.

Á hverju fiskveiðiári er heimilt að flytja af fiskiskipi 50% þess aflamarks sem skipi var úthlutað í þorskígildum talið á grundvelli verðmætahlutfalla einstakra tegunda. Auk þess er heimilt að flytja frá skipi það aflamark í einstökum tegundum sem flutt hefur verið til skips. Heimilt er Fiskistofu að víkja frá þessari takmörkun á heimild til flutnings á aflamarki vegna varanlegra breytinga á skipakosti útgerða eða þegar skip hverfur úr rekstri um lengri tíma vegna alvarlegra bilana eða sjótjóns.

Tilkynna skal Fiskistofu um flutning aflamarks á eyðublaði sem Fiskistofa gefur út og öðlast flutningurinn ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann. Í tilkynningunni skulu koma fram upplýsingar um nöfn og skipaskrárnúmer þeirra skipa sem aflamark er flutt á milli og magn aflamarks, auk upplýsinga um verð aflamarks nema skipin séu í eigu sama aðila. Eigandi og útgerðaraðili þess skips sem aflamarkið er flutt frá skulu undirrita og leggja fram tilkynningu um flutning.

Tilkynningu um flutning aflamarks skal fylgja staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs um að fyrir liggi samningur útgerðar og áhafnar þess skips sem aflamarkið er flutt til, um fiskverð til viðmiðunar hlutaskiptum. Skal sá samningur uppfylla kröfur sem Verðlagsstofa skiptaverðs gerir, sbr. lög um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna. Telji Verðlagsstofa skiptaverðs að gildissvið laganna nái ekki yfir viðkomandi skip, skal staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs lúta að því.

Sá sem tilkynnir um flutning aflamarks skal greiða flutningsgjald fyrir hverja tilkynningu og skal útgerð viðkomandi skips bera kostnað samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu af tölvubréfum og öðrum tilkynningum samkvæmt ákvæðum þessarar greinar. Gjalddagi reiknings er við útgáfu hans og eindagi 15 dögum síðar. Gjaldið er óendurkræft. Hafi reikningur ekki verið greiddur á eindaga er Fiskistofu heimilt að stöðva frekari flutning aflamarks frá og til viðkomandi fiskiskips.

Heimilt er Fiskistofu að gera þjónustusamninga um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks milli fiskiskipa sem eru í eigu sama einstaklings eða lögaðila og skal greiða samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu fyrir slíka samninga fyrir hvert fiskveiðiár. Sækja skal til Fiskistofu um gerð þjónustusamnings um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til. Á umsóknareyðublöðunum skulu koma fram þær upplýsingar sem Fiskistofa telur nauðsynlegar og óskar þar eftir. Verði breytingar á atriðum sem útgerð hefur tilgreint í umsókn sinni skal hlutaðeigandi útgerð tilkynna Fiskistofu skriflega um breytingarnar án tafar.

Útgerð ber alfarið ábyrgð á öllum rafrænum tilkynningum um flutning aflamarks sem framkvæmdar eru samkvæmt þjónustusamningi hennar við Fiskistofu og skal útgerðin tryggja að óviðkomandi aðilar komist ekki yfir aðgang hennar til að tilkynna Fiskistofu rafrænt um flutning aflamarks. Þjónustusamningur um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks fellur úr gildi verði vanskil á greiðslu gjalds fyrir samninginn og ef hlutaðeigandi útgerð hefur brotið gegn reglum er gilda um flutning aflamarks eða skilyrðum sem sett hafa verið varðandi rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks.

Fiskistofa skal daglega birta aðgengilegar upplýsingar um flutning aflamarks, þar á meðal um magn eftir tegundum, auk upplýsinga um verð, þar sem við á.

Tilkynning um flutning aflamarks skal hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 15 dögum eftir að veiðitímabili lýkur.

10. gr.

Beiðni um flutning á aflahlutdeild milli fiskiskipa skal tilkynna Fiskistofu fyrirfram og á því formi sem Fiskistofa gerir kröfu um, þ.m.t. með undirritun eiganda skips og vottun. Krókaaflahlutdeild verður aðeins flutt til báts sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og uppfyllir stærðarmörk sem kveðið er á um í 6. gr. Við flutning á aflahlutdeild skal leggja fram veðbókarvottorð þess skips sem flutt er frá auk skriflegs samþykkis eftirgreindra aðila:

  1. þeirra er þinglýst samningsveð áttu í skipinu 1. janúar 1991,
  2. þeirra, sem eiga þinglýsta kvöð á skipinu þar sem kveðið er á um að framsal aflahlutdeildar sé óheimilt án samþykkis kvaðarhafa,
  3. þinglýst samþykki þeirra, sem eiga þinglýst samningsveð í skipinu frá og með 1. janúar 1998.

Flutningur aflahlutdeildar öðlast ekki gildi fyrr en staðfesting Fiskistofu liggur fyrir. Aldrei er heimilt að flytja aflahlutdeild milli skipa, leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess.

Umsóknir um flutning aflahlutdeildar milli fiskiskipa ásamt fullnægjandi fylgigögnum skulu hafa borist Fiskistofu eigi síðar en einum mánuði fyrir lok fiskveiðiárs. Berist umsókn innan mánaðar, hefur flutningur aflahlutdeildar ekki áhrif á úthlutun aflamarks komandi fiskveiðiárs.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild en tilgreint er í 13. gr. laga um stjórn fiskveiða. Fyrir staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeildar og krókaaflahlutdeildar milli skipa skal eigandi þess skips sem flutt er frá greiða samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu.

VIII. KAFLI Veiðiskylda.

11. gr.

Veiði fiskiskip minna en 50% á fiskveiðiári af úthlutuðu aflamarki sínu og aflamarki sem flutt hefur verið frá fyrra fiskveiðiári, í þorskígildum talið, fellur aflahlutdeild þess niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips skv. þorskígildisstuðlum. Viðmiðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á. Hið sama á við þegar skipi er haldið til veiða utan lögsögu á tegundum sem samið hefur verið um veiðistjórn á og ekki teljast til deilistofna.

Tefjist skip frá veiðum í a.m.k. fjóra mánuði vegna tjóns, meiri háttar bilana eða endurbóta hefur afli þess fiskveiðiárs ekki áhrif til niðurfellingar aflahlutdeildar samkvæmt þessari grein.

IX. KAFLI Ýmis ákvæði.

12. gr.

Skipstjóra er skylt að halda fiski um borð í veiðiskipum aðgreindum eftir tegundum. Verði slíku ekki við komið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Ennfremur er skylt að láta vigta afla samkvæmt ákvæðum III. kafla laga um umgengni um nytjastofna sjávar og reglugerðar um vigtun og skráningu sjávarafla.

Afla af skrápflúru og sandkola sem fenginn er á því veiðisvæði sem tilgreint er í 6. mgr. 2. gr. skal haldið aðskildum frá öðrum afla af þessum tegundum og hann veginn og skráður sérstaklega.

Ef haldið er til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands skal, þegar haldið er úr höfn, tilkynna Fiskistofu hvar fyrirhugað sé að stunda veiðar. Þá skal tilkynna hvenær veiðar hefjast og hvenær þeim lýkur, nema annað sé ákveðið í sérstökum reglugerðum um viðkomandi veiðar. Í tilkynningunni komi fram, eftir því sem við á, áætlaður afli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.

Í einni og sömu veiðiferð er óheimilt að stunda veiðar bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Þetta gildir þó ekki, haldi skip til veiða utan lögsögunnar á úthafskarfa, síld, loðnu, kolmunna, túnfiski eða makríl, enda sé Fiskistofu tilkynnt um slíkt í samræmi við reglur þar að lútandi.

Heimilt er þó með samþykki Fiskistofu að víkja frá banni, skv. 4. mgr., enda hafi afli og aflasamsetning um borð í fiskiskipi verið staðfest með fullnægjandi hætti að mati Fiskistofu, áður en skip flytur sig milli veiðisvæða utan og innan lögsögunnar.

Þorsk-, ýsu- og ufsaveiðar með hringnót eru bannaðar.

13. gr.

Útgerðum skipa sem fengið hafa leyfi Fiskistofu til að vinna afla um borð er skylt að lokinni veiðiferð að skila sérstakri skýrslu um afla til Fiskistofu á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til.

Þá er skipstjórum fiskiskipa skylt að halda sérstakar afladagbækur, sbr. reglugerð um skráningu og rafræn skil aflaupplýsinga.

Kaupendum afla er skylt að skila til Fiskistofu skýrslum um móttekinn afla í því formi, sem Fiskistofa ákveður, sbr. reglugerð um skýrsluskil vegna viðskipta með sjávarafla.

14. gr.

Heimilt er að nýta báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, til veiða í frístundum, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um stjórn fiskveiða, enda séu engin veiðarfæri um borð önnur en handfæri án sjálfvirknibúnaðar og/eða sjóstangir. Óheimilt er að selja aflann eða fénýta á annan hátt.

Skipstjórar báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni og fara til veiða, skv. 1. mgr., skulu tilkynna Fiskistofu um það áður en veiðiferð hefst.

15. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Um áminningar og sviptingu veiðileyfa vegna brota á ákvæðum reglugerðar þessarar fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Um gjald vegna ólögmæts sjávarafla gilda ákvæði laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.

16. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Bráðabirgðaákvæði kemur til framkvæmda nú þegar en ákvæði annarra greina koma til framkvæmda 1. september. Við gildistöku hennar fellur úr gildi reglugerð nr. 726/2020 um veiðar i atvinnuskyni fiskveiðiárið 2020/2021 og reglugerð nr. 200/1975 um takmarkaða heimild til hringnótaveiða.

Ákvæði til bráðabirgða.

Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki íslenskrar sumargotssíldar frá fiskveiðiárinu 2020/2021 yfir á fiskveiðiárið 2021/2022.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.