Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

837/2020

Reglugerð um tímabundið bann við veiðum á tveimur svæðum í Jökuldýpi.

1. gr.

Allar veiðar á tveimur litlum svæðum í Jökuldýpi eru bannaðar á tímabilinu frá og með 27. ágúst til og með 15. nóvember 2020, vegna atferlisrannsókna Hafrannsóknastofnunar á humri.

Svæðin eru sýnd á korti í fylgiskjali og afmarkast af eftirfarandi hnitum:

Innra svæði:

  1. 64°32,00´N - 23°11,00´V
  2. 64°34,00´N - 23°11,00´V
  3. 64°34,00´N - 23°15,00´V
  4. 64°32,00´N - 23°15,00´V

Ytra svæði:

  1. 64°27,00´N - 23°56,00´V
  2. 64°29,00´N - 23°56,00´V
  3. 64°29,00´N - 24°00,00´V
  4. 64°27,00´N - 24°00,00´V

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. ágúst 2020.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.