Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

818/2016

Reglugerð um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki, hönnun o.fl. - Brottfallin

I. KAFLI

Gildissvið.

1. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um gjöld fyrir þjónustu Einkaleyfastofunnar í tengslum við réttindi sem veitt eru á grundvelli laga nr. 17/1991 um einkaleyfi (ell.), nr. 45/1997 um vörumerki (vml.), nr. 155/2002 um félagamerki (fml.) og nr. 46/2001 um hönnun (hl.).

Gjöld greiðast Einkaleyfastofunni nema annað sé tekið fram.

Gjöld samkvæmt reglugerð þessari verða ekki endurgreidd.

II. KAFLI

Einkaleyfi.

2. gr.

Einkaleyfisumsóknir.

Fyrir umsóknir um einkaleyfi skal greiða þegar við á:

1. Gjald fyrir umsókn um einkaleyfi, yfirfærða alþjóðlega einkaleyfisumsókn eða beiðni um endurmat skv. 38. gr. ell.: kr.   
  a. umsóknargjald 64.400
  b. viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu umfram tíu 4.100
2. Gjald skv. 36. og 37. gr. ell. 55.200
3. Viðbótargjald vegna viðbótarfrests til að leggja inn tilskilda þýðingu vegna yfirfærðrar umsóknar
17.300
4. Umsýslugjald fyrir milligöngu við nýnæmisrannsókn hjá alþjóðlega viður­kenndri stofnun
7.500

Fyrir hlutun eða úrfellingu skal greiða umsóknargjald skv. 1. tl. 1. mgr. auk árgjalda skv. 3. gr. í samræmi við 2. mgr. 41. gr. ell.

3. gr.

Árgjöld.

Árgjöld fyrir einkaleyfisumsóknir og einkaleyfi eru sem hér segir:

Gjaldár kr. Gjaldár kr. Gjaldár kr.
1. 11.000 8. 18.400 15. 38.600
2. 11.000 9. 20.700 16. 42.600
3. 11.000 10. 23.000 17. 47.800
4. 12.700 11. 25.300 18. 52.400
5. 13.800 12. 27.600 19. 57.500
6. 15.000 13. 30.500 20. 63.300
7. 16.700 14. 34.500    

Árgjald fyrir 11.-15. ár einkaleyfis sem veitt var í samræmi við eldri lög kr. 132.500

Gjalddagi vegna 3. gildistímabils einkaleyfis skv. 2. mgr., er sá almanaksdagur í upphafi tímabilsins sem svarar til útgáfudags einkaleyfisins.

Árgjald, sem greitt er innan sex mánaða frá gjalddaga skal hækka um 20%.

4. gr.

Útgáfa einkaleyfis.

Fyrir útgáfu einkaleyfis skal greiða þegar við á:

    kr.   
1. Útgáfugjald fyrir fyrstu 40 blaðsíður einkaleyfisskjals (lýsing, einka­leyfis­kröfur, teikningar og ágrip)
27.600
2. Viðbótargjald fyrir hverja síðu umfram 40 1.200
3. Viðbótargjald fyrir hverja einkaleyfiskröfu sem bætt er við eftir innlagningu umsóknar
4.100
4. Gjald fyrir endurútgáfu einkaleyfis 27.600

5. gr.

Evrópsk einkaleyfi.

Fyrir evrópsk einkaleyfi, svo sem staðfestingu einkaleyfis, endurútgáfu eða kr.       
fyrir útgáfu leiðréttrar þýðingar greiðast 31.100   

6. gr.

Viðbótarvottorð.

Vegna umsóknar um viðbótarvernd og útgáfu viðbótarvottorðs skal greiða eftir því sem við á:

    kr.   
1. Umsóknargjald 64.400
2. Árgjald fyrir hvert byrjað gjaldár viðbótarvottorðs 63.300

Árgjald skv. 2. tl. 1. mgr., sem greitt er innan sex mánaða frá gjalddaga, hækkar um 20%.

7. gr.

Takmörkun á verndarsviði.

Gjald fyrir beiðni um takmörkun á verndarsviði einkaleyfis kr. 27.600   

III. KAFLI

Vörumerki og félagamerki.

8. gr.

Umsókn eða endurnýjun merkis.

Fyrir umsókn um skráningu merkis eða endurnýjun þess skal greiða eftirtalin gjöld þegar við á:

    kr.   
1. Umsóknar- eða endurnýjunargjald, einn vöru- eða þjónustuflokkur inni­falinn
32.200
2. Viðbótargjald fyrir hvern vöru- og/eða þjónustuflokk umfram einn 6.900
3. Gjald fyrir hverja mynd umfram eina í umsókn þegar merkið er í þrívídd 3.500

Gjöld fyrir tilnefningu á Íslandi í umsókn um alþjóðlega skráningu vörumerkis eða vegna endur­nýjunar þeirra eru greidd til Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO).

9. gr.

Breyting á merki eða beiðni um hlutun.

  kr.      
Beiðni um breytingu á skráðu merki 6.900   
Beiðni um hlutun umsóknar eða skráningar 20.700   

10. gr.

Andmæli og afnám skráningar.

Tilkynning um andmæli eða krafa um að skráning merkis verði felld úr gildi kr. 41.400   

11. gr.

Ruglingshættuleit.

Leit í vörumerkjaskrá að sambærilegu merki kr. 5.800   

Útheimti beiðni um leit skv. 1. mgr. verulega úrvinnslu gagna eða leit í skjalasafni reiknast að auki tímagjald samkvæmt 18. gr. eftir því sem við á.

IV. KAFLI

Hönnun.

12. gr.

Umsókn um skráningu eða endurnýjun hönnunar.

Fyrir umsókn um skráningu hönnunar skal greiða eftir því sem við á:

    kr.   
 1. Umsóknargjald fyrir hvert fimm ára tímabil 17.300
 2. Umsóknargjald fyrir hverja hönnun umfram eina í samskráningu fyrir hvert fimm ára tímabil
7.500
 3. Gjald fyrir hverja mynd umfram eina 4.100
 4. Rannsóknargjald 11.000

Ef óskað er eftir því við innlagningu umsóknar að skráning hönnunar gildi í fleiri en eitt tímabil í senn skal greiða umsóknargjald fyrir hvert tímabil sem skráningunni er ætlað að ná yfir.

Fyrir endurnýjun á skráningu hönnunar skal greiða eftir því sem við á:

    kr.   
 1. Endurnýjunargjald fyrir hvert fimm ára tímabil 21.900
 2. Endurnýjunargjald fyrir hverja hönnun umfram eina í samskráningu fyrir hvert fimm ára tímabil
7.500

13. gr.

Brottfall skráningar.

Gjald vegna kröfu um að skráning verði felld úr gildi kr. 12.700   

V. KAFLI

Ýmis ákvæði.

14. gr.

Umsýsla alþjóðlegra umsókna.

Umsýslugjald fyrir móttöku og meðhöndlun alþjóðlegrar einkaleyfis-, kr.      
vörumerkja- eða hönnunarumsóknar 17.300   

15. gr.

Endurupptaka og endurveiting réttinda.

  kr.      
Gjald fyrir beiðni um endurupptöku 11.000   
Gjald fyrir meðhöndlun beiðni um endurveitingu réttinda til einkaleyfis eða hönnunar  
41.400   

16. gr.

Innfærsla í málaskrá.

Gjald fyrir beiðni um innfærslu upplýsinga um aðilaskipti, nytjaleyfi kr.      
eða veðsetningu 6.900   
Gjald fyrir beiðni um aðrar innfærslur í málaskrá, s.s. breyting á nafni eða  
heimilisfangi umsækjanda eða breytingar varðandi umboðsmann 3.500   

17. gr.

Afrit af gögnum í málaskrá.

Fyrir afrit af aðgengilegum gögnum úr málaskrá skal greiða eftir því sem við á:

    kr.   
1. Rafrænt afrit af umsókn eða af veittu einkaleyfi, skráðu merki eða hönnun eða öðrum skjölum úr skjalavistunarkerfi
1.200
2. Staðfest afrit af skjölum skv. 1. tl. eða útgáfa forgangsréttarskjals 4.600
3. Útprentun eða ljósritun gagna, hver síða í stærðinni A4 200

Ef beiðni um afrit skv. 1. mgr. útheimtir verulega úrvinnslu gagna eða leit í skjalasafni reiknast að auki tímagjald samkvæmt 18. gr. eftir því sem við á.

18. gr.

Þjónustuverkefni.

Fyrir þjónustu, sem verður ekki heimfærð undir einingarverð reglugerðarinnar, kr.      
svo sem umfangsmikla leit, athuganir, úrvinnslu eða tölvuútskriftir, greiðist tímagjald
6.900   

19. gr.

ELS-tíðindi.

  kr.      
Áskriftargjald á ári 4.100   
Útprentun, hvert eintak 500   

20. gr.

Áfrýjun.

Gjald vegna áfrýjunar á grundvelli laga um einkaleyfi, vörumerki, hönnun kr.      
eða félagamerki 85.000   

Áfrýjunargjald greiðist viðkomandi ráðuneyti við afhendingu bréfs um áfrýjun.

Sé mál afturkallað áður en áfrýjunarnefnd er fullskipuð, málinu vísað frá áfrýjunarnefnd eða það vinnst skal ráðuneytið endurgreiða 65.000 kr.

VI. KAFLI

Lokaákvæði.

21. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 68. gr. laga nr. 17/1991 um einkaleyfi, 63. gr. laga nr. 45/1997 um vörumerki, 36. gr. og 53. gr. laga nr. 46/2001 um hönnun og 9. gr. laga nr. 155/2002 um félagamerki og öðlast gildi 1. janúar 2017.

Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 804/2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. september 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Sigrún Brynja Einarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica