Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

800/2017

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 193/2016 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/949 um samþykki fyrir eftirliti tiltekinna þriðju landa fyrir útflutning á tilteknum matvælum að því er varðar tilvist tiltekins sveppaeiturs.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007 frá 26. október 2007 öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1269 frá 13. júlí 2017 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/949 að því er varðar að taka jarðhnetur frá Bandaríkjunum af skránni yfir samþykkt eftirlit fyrir útflutning að því er varðar aflatoxín.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1269 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt vegna matvæla í samræmi við 6. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. ágúst 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.