Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

793/2018

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 674/2018 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2018/2019 (hlýri, krókaaflamark). - Brottfallin

1. gr.

Á eftir orðinu "litla karfa" í 1. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar kemur: hlýra.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. ágúst 2018.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica