Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 29. jan. 2021

782/2017

Reglugerð um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

1. gr. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða starfar á grundvelli laga nr. 75/2011. Sjóðurinn heyrir undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Sjóðurinn er í vörslu Ferðamálastofu sem annast rekstur hans, þ.m.t. framkvæmd úthlutana úr sjóðnum og samskipti við styrkþega, upplýsingamiðlun, uppgjör, bókhald og gerð ársreikninga.

Ráðherra skipar fjóra fulltrúa í stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða til tveggja ára í senn. Skal einn skipaður eftir tilnefningu Samtaka ferðaþjónustunnar, einn eftir tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga, einn eftir tilnefningu ráðherra sem fer með málefni náttúruverndar og einn án tilnefningar og skal hann jafnframt vera formaður.

Falli atkvæði í stjórn jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum.

2. gr. Hlutverk Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.

Hlutverk Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða er að veita styrki til uppbyggingar, viðhalds og verndunar ferðamannastaða um land allt og til aðgerða sem stuðla að öryggi ferðamanna og verndun náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.

3. gr. Stjórn Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.

Stjórn sjóðsins gerir að jafnaði einu sinni á ári tillögur til ráðherra um úthlutanir úr sjóðnum.

Stjórn sjóðsins getur haft frumkvæði að öflun upplýsinga frá yfirvöldum umhverfis- og ferðamála og öðrum hagsmunaaðilum um þörf á framkvæmdum á ferðamannastöðum og forgangsröðun framkvæmda.

Stjórn sjóðsins getur farið í vettvangsferðir á ferðamannastaði, telji hún þörf á því, og stuðlað að auknu samstarfi hagsmunaaðila um uppbyggingu og verndun ferðamannastaða ef við á. Kostnaður við vettvangsferðir greiðist af sjóðnum.

Stjórn sjóðsins skal halda fundargerðir um fundi sína og skulu þær undirritaðar af þeim sem fundinn sitja. Fundargerðir stjórnar skal birta á heimasíðu Ferðamálastofu.

4. gr. Hlutverk Ferðamálastofu.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er í vörslu Ferðamálastofu sem annast rekstur sjóðsins.

Hlutverk Ferðamálastofu er:

  1. Skipuleggur starfsemi sjóðsins og annast rekstur hans.
  2. Þjónusta við stjórn sjóðsins vegna tillagnagerðar til ráðherra:
    1. Undirbýr og boðar til funda í stjórn sjóðsins og ritar fundargerðir í samráði við formann.
    2. Annast kynningu á sjóðnum, útbýr kynningarefni og upplýsingar um starfsemi hans, úthlutunarstefnu, áherslur, fresti og skilyrði og birtir auglýsingar eftir umsóknum.
    3. Sér um móttöku umsókna og að faglegt mat á umsóknum fari fram.
  3. Annast afgreiðslu styrkja, samningagerð við styrkþega og eftirfylgni styrkúthlutana.
  4. Metur framvindu- og lokaskýrslur og efndir samninga.
  5. Sér um verkefnabókhald, gerð ársreikninga og tilheyrandi reikningshald í samvinnu við ráðuneytið.

Ferðamálastofa hefur eftirlit með framvindu verkefna og bregst við ef verulegar breytingar verða vegna einstakra verkefna.

Ferðamálastofa skal einu sinni á ári skila ráðuneytinu skýrslu um stöðu sjóðsins ásamt yfirliti yfir styrkþega, veitta styrki og stöðu verkefna. Í skýrslunni skal einnig fjallað um árangur af starfi sjóðsins og mat á framtíðarhorfum verkefna.

5. gr. Styrkhæf verkefni.

Samkvæmt 2. og 3. mgr. 1. gr. laga nr. 75/2011 skal sjóðurinn veita fjármagni til:

  1. uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum sem eru í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila,
  2. framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru á ferðamannastöðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila,
  3. undirbúnings- og hönnunarvinnu vegna verkefna sem eru styrkhæf samkvæmt a- eða b-lið.

Mótframlag styrkhafa miðast að jafnaði við 20% af styrkfjárhæð. Mótframlag getur verið í formi útgjalda eða vinnuframlags.

Framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum koma ekki til álita við úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða nema sérstaklega standi á, verkefnið sé í þágu almannahagsmuna og þarfnist skjótrar úrlausnar.

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða leggur áherslu á að veita styrki til varanlegra langtímalausna sem byggja á vandaðri hönnun. Að öllu jöfnu er ekki gert ráð fyrir að sjóðurinn veiti fjármagni til uppsetningar skyndilausna nema ef um undantekningartilvik er að ræða þar sem mjög brýna nauðsyn ber til og þá sem undanfara varanlegrar mannvirkjagerðar eða í kjölfar náttúruhamfara.

Sé aðeins veittur styrkur til undirbúnings- eða hönnunarvinnu skv. c-lið 1. mgr. skal sú framkvæmd sem undirbúningur eða hönnunarvinna er vegna vera að öðru leyti styrkhæf skv. a- eða b-lið 1. mgr. Fyrirhuguðu verkefni skal í umsókn lýst svo skilmerkilega að mögulegt sé að meta styrkhæfi þess.

6. gr. Takmarkanir á styrkveitingum.

Framkvæmdasjóði ferðamannastaða er ekki heimilt að:

  1. Veita framlög til rekstrarkostnaðar mannvirkja, náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
  2. Veita fjármagni til verkefna sem þegar er lokið.
  3. Styrkja fyrirtæki sem hafa með höndum rekstur ferðamannastaða umfram þá hámarksupphæð sem leyfilegt er samkvæmt reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1407/2013 um minniháttar aðstoð (de minimis reglu), nú að hámarki 200.000 evrur á hverju 36 mánaða tímabili að frádregnum öðrum styrkjum frá opinberum sjóðum sem viðkomandi hefur fengið til sömu verkefna á sama tímabili.
  4. Greiða fastan launakostnað umsækjenda, sbr. þó 2. mgr. 8. gr.
  5. Veita styrki til ferðamannastaða sem ekki eru opnir gjaldfrjálsri umferð almennings. Heimilt er þó að taka gjald fyrir veitta þjónustu.

7. gr. Umsóknartímabil.

Styrkjum úr sjóðnum er að jafnaði úthlutað einu sinni á ári. Samkvæmt ákvörðun ráðherra skal auglýsa eftir umsóknum í fjölmiðlum og á heimasíðum Ferðamálastofu og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Umsóknartímabil skal vera minnst þrjár vikur.

Ráðherra er heimilt að tilgreina í auglýsingu að sérstaklega sé óskað eftir styrkumsóknum með tilteknum áherslum og skal þá gæðamat verkefna í þeirri úthlutun taka mið af þeim áherslum.

8. gr. Umsóknir og fylgigögn.

Allar umsóknir skulu vera rafrænar. Umsóknum skal fylgja:

  1. Verkefnalýsing sem lýsir hugmyndinni með rökstuddum og skýrum hætti. Æskilegt er að í lýsingu komi fram markmið verkefnis eða aðgerðir sem stefnt er að og hvernig þær falla að hlutverki Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.
  2. Sundurgreind kostnaðar-, verk- og framkvæmdaráætlun (tímasett), sbr. umsóknareyðublöð.
  3. Afrit af skipulagi svæðis og/eða skriflegt samþykki viðkomandi yfirvalda vegna verkefnisins og framkvæmdaleyfi ef við á.
  4. Teikningar af mannvirkjum, þar sem það á við og/eða skriflegt samþykki byggingarfulltrúa.
  5. Skriflegt samþykki allra landeigenda og/eða umsjónaraðila.
  6. Yfirlit yfir aðra opinbera styrki sem sama verkefni hefur fengið sl. 36 mánuði.
  7. Myndir af framkvæmdarstað sem sýna aðstæður. Myndir sem teknar eru skulu teknar þannig að auðvelt verði að taka samanburðarmyndir á sama stað síðar.

Áætlun um heildarfjármögnun verkefnis, þar með talin eigin mótframlög og/eða frá öðrum, skal koma fram í kostnaðaráætlun og skal hún staðfest við gerð samnings ef umsókn er samþykkt.

9. gr. Mat á umsóknum.

Við mat á umsóknum skal litið til forsendna og eðlis verkefna. Umsóknir skulu metnar og þeim gefnar einkunnir á grundvelli gæðaviðmiða sem stjórn sjóðsins setur sér. Gæðaviðmið skulu taka mið af tilgangi sjóðsins og hvort óskað hafi verið, í auglýsingu, eftir styrkumsóknum með tilteknum áherslum. Innbyrðis vægi gæðaviðmiða skal ákveðið fyrirfram fyrir hverja úthlutun og birt á heimasíðu Ferðamálastofu á umsóknartíma.

Stjórn sjóðsins getur óskað eftir frekari upplýsingum frá umsækjendum ef þörf er á. Stjórn sjóðsins getur jafnframt leitað umsagnar og upplýsinga frá sveitarfélögum og öðrum opinberum aðilum varðandi tilteknar umsóknir.

10. gr. Tillögugerð.

Ferðamálastofa leggur styrkumsóknir fyrir stjórn sjóðsins ásamt mati á styrkhæfni umsókna. Stjórn sjóðsins gerir heildstæðar tillögur til ráðherra um samþykki eða synjun umsókna. Stjórn sjóðsins ber ábyrgð á tillögugerðinni.

Hverri tillögu stjórnar skal fylgja rökstuðningur þar sem fram kemur mat á viðkomandi verkefni.

Tillögur stjórnar eru sendar ráðherra með rafrænum hætti ásamt eftirfarandi fylgigögnum:

  1. Tillögur til samþykktar og synjunar.
  2. Heildaryfirlit umsókna ásamt greinargerð þar sem gerð er grein fyrir verkefnum.

Óski styrkhafi eftir því að gera breytingar á verkefni sem ekki teljast verulegar getur Ferðamálastofa veitt samþykki. Ef beiðni felur í sér verulegar breytingar á forsendum verkefnis skal Ferðamálastofa leggja mat á forsendur breytinganna og leggja fyrir ráðherra til samþykktar eða synjunar.

Stjórn sjóðsins getur ákveðið að gera ekki tillögu til ráðherra um að veita styrk til tiltekins verkefnis, sem uppfyllir að öðru leyti kröfur sjóðsins, af þeirri ástæðu að umsækjandi hafi ekki staðist kröfur sjóðsins við framkvæmd fyrri verkefna, svo sem ef framvindu- eða lokaskýrslu hefur ekki verið skilað þrátt fyrir ítrekun af hálfu sjóðsins eða ef stjórn sjóðsins metur það svo að umsækjandi muni ekki ná að nýta umbeðinn styrk vegna annarra verkefna sem hann er þegar með í vinnslu á grundvelli styrkja úr sjóðnum.

11. gr. Úthlutanir.

Ráðherra tekur ákvörðun um einstakar úthlutanir úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða á grundvelli tillagna stjórnar. Um veitingu styrkja og málsmeðferð gilda ákvæði stjórnsýslulaga. Upplýsingar um úthlutanir úr sjóðnum skal birta opinberlega.

Ákvarðanir ráðherra eru sendar með rafrænum hætti til Ferðamálastofu sem sér um framkvæmd úthlutana.

12. gr. Greiðsla styrks og mat á framvindu verkefna.

Styrkur greiðist út til styrkþega í samræmi við samþykkta kostnaðar-, verk- og framkvæmdaráætlun, sbr. b-lið 8. gr., þegar verkefni er lokið og lokaskýrsla hefur verið samþykkt. Styrkþega er heimilt að skila inn framvinduskýrslu sem lýsir a.m.k. hálfnuðu verki og greiðist þá 40% af styrkfjárhæðinni við samþykkt hennar.

Samningum um styrki skal lokið og þeir undirritaðir innan þriggja vikna frá því að ákvörðun um styrkveitingu er tilkynnt styrkþega eða eins fljótt og unnt er. Styrkþega ber að skila inn lokaskýrslu ásamt greinargerð um eigið framlag sem telst hluti af heildarkostnaði innan þess frests sem tilgreindur er í samningi. Hafi samningur eða lokaskýrsla ekki borist fyrir tilsettan tíma fellur styrkurinn niður og verður afturkræfur hafi ekki komið fram sérstakar skýringar eða samið um annað.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er heimilt að greiða styrki veitta 2020 og 2021 til styrkþega með fimm jöfnum greiðslum í samræmi við framvindu verks.

13. gr. Skilyrði fyrir styrkveitingu og ábyrgð styrkhafa.

Styrkur er veittur til tilgreindra verkefna samkvæmt samningi. Styrkþega er óheimilt að framselja styrkinn eða ráðstafa til annarra aðila eða til annarra verkefna en getið er um í samningi. Reikningar vegna verkefnisins skulu vera skýrt aðgreindir frá annarri starfsemi í bókhaldi.

Styrkþegi skal tilkynna Ferðamálastofu án tafar ef breytingar verða á högum hans sem geta haft áhrif á framkvæmd verkefnisins. Ef aðilaskipti eða breytingar á högum skerða fyrirsjáanlega möguleika styrkþega á að ljúka verkefni á tilsettum tíma fellur réttur styrkþega til styrkveitingar niður.

Styrkþegi skal vinna verkið í samræmi við vinnuáætlun. Styrkþegi skal leita fyrirfram samþykkis Ferðamálastofu fyrir breytingum á verkefnum. Styrkur greiðist aðeins út ef gæði vinnu eru í samræmi við kröfur sjóðsins. Allur frágangur við verkefnið verður að vera til fyrirmyndar og í samræmi við lög, reglugerðir og samþykkt viðmið.

Styrkþegi er ábyrgur fyrir eðlilegu viðhaldi svæðis og mannvirkjum, stórum sem smáum, er tengjast viðkomandi framkvæmd. Sjóðurinn tekur ekki á sig skuldbindingar við uppfærslu, viðhald eða viðgerðir á mannvirkjum sem tengjast styrkveitingu.

Styrkþegi ábyrgist með undirritun á samningi að öll lögbundin leyfi og samþykktir vegna framkvæmdarinnar liggi fyrir, sem og önnur þau gögn sem tiltekin voru í auglýsingu um styrki.

14. gr. Vanefndir.

Brot styrkþega á gerðum samningum eða öðrum skilmálum um úthlutun styrkja úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða veitir Ferðamálastofu heimild til að stöðva greiðslur til styrkþega, fella niður styrk og krefjast fullrar endurgreiðslu þegar styrkþegi hefur fengið hluta styrksins greiddan fyrirfram. Brot á samningi getur einnig haft áhrif á möguleika styrkhafa til frekari styrkveitinga. Ferðamálastofa fer með mál vegna vanefnda samkvæmt málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga.

Mál er kunna að rísa út af ágreiningi um samninga skulu rekin fyrir héraðsdómi Reykjavíkur.

15. gr. Endurúthlutun styrkja.

Þegar samningur um styrk er felldur niður vegna vanefnda eða þegar samningur um styrkveitingu er ekki gerður skal veitt styrkfjárhæð renna til baka í sjóðinn til endurúthlutunar. Það sama gildir þegar styrkhafi er krafinn um endurgreiðslu þegar greidds styrks.

16. gr. Kæruheimild.

Ákvarðanir Ferðamálastofu sem teknar eru á grundvelli laga nr. 75/2011 og reglugerðar þessarar eru kæranlegar til ráðherra. Um málsmeðferð fer samkvæmt stjórnsýslulögum.

17. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 6. gr. laga um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, nr. 75/2011, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um starfsreglur Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða vegna styrkveitinga, nr. 20/2016, með síðari breytingum.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.