Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

751/2017

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 106/2010 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 um opinbert eftirlit til að staðfesta að lög um fóður og matvæli og reglur um heilbrigði og velferð dýra séu virt. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftir­taldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/212 frá 7. febrúar 2017 um tilnefningu á tilvísunarrannsóknarstofu ESB fyrir rannsóknir á fjárpest, um frekari skyldur og verkefni fyrir þá rannsóknarstofu og um breytingu á VII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2017, frá 7. júlí 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórn­ar­tíð­indi Evrópusambandsins nr. 48, frá 3. ágúst 2017, bls. 494.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/140 frá 26. janúar 2017 um tilnefningu á tilvísunarrannsóknarstofu ESB fyrir rannsóknir á sjúkdómum af völdum fjár- og geita­bólu­veira (húðþrymlaveiki og fjár- og geitabóla), um frekari skyldur og verkefni fyrir þá rannsóknarstofu og um breytingu á VII. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 139/2017, frá 7. júlí 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórn­ar­tíð­indi Evrópusambandins nr. 48, frá 3. ágúst 2017, bls. 958.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. ágúst 2017,

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica