Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 23. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. sept. 2021

731/2020

Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2020/2021.

1. gr. Heildaraflaheimildir.

Á fiskveiðiárinu 2020/2021 skal sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra úthluta aflamarki sem nemur allt að 4.810 þorskígildistonnum af botnfiski og ráðstafa til stuðnings byggðarlögum, þannig:

  1. Til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.
  2. Til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum. Heimilt er að ráðstafa aflaheimildum samkvæmt þessum lið til allt að þriggja ára í senn.

Byggðarlög skv. 1. mgr. eru byggðakjarnar sem liggja að sjó og eru háðir veiðum og/eða vinnslu á sjávarafla. Minni byggðarlög teljast byggðarlög með færri íbúum en 2.000, miðað við 1. janúar 2020.

2. gr. Skipting aflaheimilda eftir botnfisktegundum.

Aflaheimildir skv. 1. gr. skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu samkvæmt eftirfarandi töflu:

Tegundir Tonn upp úr sjó Þorskígildistonn
Þorskur 4.029 3.384
Ýsa 682 521
Ufsi 1.073 565
Steinbítur 155 76
Gullkarfi 300 213
Keila 30 10
Langa 88 41
Samtals: 6.357 4.810

3. gr. Úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga.

Við úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga skal miðað við að allt að 4.810 þorskígildistonnum sé ráðstafað til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.

Þá skal miðað við að allt að 1.200 þorskígildistonnum sé ráðstafað til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa, sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim.

Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. skal við útreikning á hlut hvers byggðarlags sá kostur ávallt valinn fyrir hvert byggðarlag sem gefur því mestar aflaheimildir samkvæmt útreikningi 4. gr. A eða samtölu 4. gr. B og C.

4. gr. Útreikningur á aflaheimildum til byggðarlaga.

Við útreikning á hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags skal leggja til grundvallar eftirfarandi forsendur:

  1. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir, skv. 1. mgr. 3. gr. koma í hlut hvers byggðarlags þar sem íbúar eru færri en 2.000 þann 1. janúar 2020. Við þann útreikning skal gefa hverju byggðarlagi punkta sem fundnir eru þannig:

    1. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskafli fiskiskipa hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2010/2011 að telja til fiskveiðiársins 2019/2020, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2020, skal gefa tvo punkta.
    2. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskaflaheimildir fiskiskipa frá byggðarlagi hafa mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2010/2011 að telja til fiskveiðiársins 2020/2021, sem hlutfall af heildarbotnfiskaflaheimildum allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2020, skal gefa tvo punkta
    3. Fyrir hvert 0,1% sem vinnsla botnfiskafla í byggðarlagi hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2010/2011 að telja til fiskveiðiársins 2019/2020, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla sem unninn hefur verið í öllum byggðarlögum með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2020, skal gefa fjóra punkta.

    Ráðuneytið metur hvaða viðmiðunarár er hagstæðast hverju byggðarlagi til útreiknings aflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð og leggur þar til grundvallar tölulegar upplýsingar frá Fiskistofu. Sama fiskveiðiárið skal ávallt lagt til grundvallar við mat á öllum þáttum fyrir hvert byggðarlag, sbr. 1.-3. tl. 1. mgr., og hafi aukning orðið í einum þætti milli viðmiðunarára kemur hún til frádráttar. Samanlagðir punktar vegna samdráttar í einstökum byggðarlögum ráða því hversu mikið af aflaheimildum kemur í þeirra hlut samkvæmt þessari grein en skulu þó að lágmarki vera 15 þorskígildistonn og að hámarki 300 þorskígildistonn.
    Komi í ljós veruleg breyting á reiknuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið kanna, hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfiskvinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Hafi svo ekki orðið er heimilt að halda úthlutuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein óbreyttum frá úthlutun fiskveiðiárið 2019/2020 að teknu tilliti til hlutfalls samdráttar í heildaraflaheimildum milli fiskveiðiáranna 2019/2020 og 2020/2021.

  2. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags, skv. 2. mgr. 3. gr. Við þann útreikning skal leggja eftirfarandi forsendur til grundvallar:Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á rækju, sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildistonn eða minni frá fiskveiðiárinu 2010/2011, 2011/2012, 2012/2013, 2013/2014, 2014/2015, 2015/2016, 2016/2017, 2017/2018 eða 2018/2019 að telja til fiskveiðiársins 2019/2020 koma aflaheimildir, sem nema 70 þorskígildistonnum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildistonn en minni en 1.500 þorskígildistonn í byggðarlagi koma 140 þorskígildistonn í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildistonn eða meiri í byggðarlagi koma 210 þorskígildistonn í þess hlut.
  3. Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á skel (hörpudisk og/eða kúfskel), sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildistonn eða minni frá fiskveiðiárinu, 2010/2011, 2011/2012, 2012/2013, 2013/2014, 2014/2015, 2015/2016, 2016/2017, 2017/2018 eða 2018/2019 að telja til fiskveiðiársins 2019/2020 koma aflaheimildir, sem nema 70 þorskígildistonnum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildistonn en minni en 1.500 þorskígildistonn í byggðarlagi koma 140 þorskígildistonn í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildistonn eða meiri í byggðarlagi koma 210 þorskígildistonn í þess hlut.
  4. Nú sýna útreikningar að aflaheimildir koma einnig í hlut tiltekins byggðarlags samkvæmt A-lið þessarar greinar og skal þá einungis úthluta aflaheimildum til byggðarlags á grundvelli þess ákvæðis sem meira gefur, þ.e. A-liðar eða samtölu B- og C- liða.
  5. Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A-lið hér að ofan, skal hlutur byggðarlaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var aflaheimildum á fiskveiðiárinu 2019/2020, og eiga rétt til úthlutunar fiskveiðiárið 2020/2021, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorskígildistonn, milli fiskveiðiáranna 2019/2020 og 2020/2021.
  6. Þrátt fyrir ákvæði A-liðar skal úthlutun byggðakvóta til þeirra byggðarlaga sem fengið hafa úthlutað aflaheimildum frá Byggðastofnun, skv. 10. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, ekki vera lægri en nam úthlutun byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020.

5. gr. Tilkynningar um byggðakvóta til sveitarstjórna.

Ráðuneytið tilkynnir sveitarstjórnum hversu miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags sem undir þær falla.

6. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi sem sett er skv. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda 1. september 2020. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2019/2020 þann 1. september 2020.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.