Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

731/2015

Reglugerð um heimild til flutnings á aflamarki í humri frá fiskveiðiárinu 2014/2015 yfir á fiskveiðiárið 2015/2016. - Brottfallin

1. gr.

Heimilt er að flytja allt að 20% af aflamarki í humri frá fiskveiðiárinu 2014/2015 yfir á fiskveiðiárið 2015/2016.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. ágúst 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Erna Jónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica