Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 12. ágúst 2021

730/2020

Reglugerð um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta.

1. gr.

Þar sem takmarkaðar rækjuveiðar voru stundaðar í Ísafjarðardjúpi og Arnarfirði og engar rækjuveiðar voru stundaðar á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda, Öxarfirði og norðurfjörðum Breiðafjarðar á fiskveiðiárinu 2019/2020, og á Eldeyjarsvæði almanaksárið 2019, skal á fiskveiðiárinu 2020/2021 úthluta aflamarki sem nemur samtals 869 þorskígildistonnum til báta, sem hafa hlutdeild í rækju á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla rækjuvertíðanna 1996/1997 - 2005/2006 að frádregnum afla í rækju fiskveiðiársins 2019/2020 á viðkomandi svæði. Verðmætastuðullinn fyrir rækju er 0,52, miðað við þorskígildi og koma 140 þorskígildistonn í hlut báta frá Arnarfirði, 120 þorskígildistonn í hlut báta í Ísafjarðardjúpi, 148 þorskígildistonn í hlut báta við Húnaflóa, 153 þorskígildistonn í hlut báta við Skagafjörð, 70 þorskígildistonn í hlut báta á Skjálfanda, 201 þorskígildistonn í hlut báta við Öxarfjörð, 23 þorskígildistonn í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 þorskígildistonn í hlut báts í norðurfjörðum Breiðafjarðar.

2. gr.

Þar sem engar hörpudisksveiðar voru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði á fiskveiðárinu 2019/2020 skal á fiskveiðiárinu 2020/2021 úthluta aflamarki sem samtals nemur 983 þorskígildistonnum til báta, sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum.

Við útreikning uppbóta er miðað við að skerðingin verði ekki meiri en 30% frá meðalafla áranna 1998 til 2007. Verðmætastuðullinn fyrir hörpudisk er 0,32, miðað við þorskígildi, og koma 7 þorskígildistonn í hlut báta frá Arnarfirði, 33 þorskígildistonn í hlut báta við Húnaflóa, 919 þorskígildistonn í hlut báta við Breiðafjörð og 24 þorskígildistonn í hlut báta við Hvalfjörð.

3. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miða við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2020. Uppbæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa, steinbít, gullkarfa, keilu og löngu samkvæmt eftirfarandi töflu:

Tegundir Tonn upp úr sjó Þorskígildistonn
Þorskur 1.472 1.236
Ýsa 257 196
Ufsi 453 239
Steinbítur 51 25
Gullkarfi 199 141
Keila 8 3
Langa 26 12
Samtals: 2.466 1.852

4. gr.

Reglugerð þessi er sett, skv. 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. september 2020. Jafnframt fellur reglugerð nr. 678/2019, um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða úr gildi frá 1. september 2020.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. júlí 2020.

Kristján Þór Júlíusson

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.