Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

711/2019

Reglugerð um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótaraflaheimildum í makríl.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun viðbótaraflaheimilda í makríl samkvæmt ákvæði 10. gr. b. í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

2. gr.

Heimilt er að úthluta allt að 4.000 lestum af viðbótaraflaheimildum í makríl ár hvert til skipa í B-flokki gegn greiðslu gjalds. Úthluta skal allt að 35 lestum í senn. Eftir 15. september skal úthluta til skipa í A-flokki því sem eftir er gegn greiðslu gjalds.

3. gr.

Úthlutun viðbótaraflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð er bundin því skilyrði að skip hafi veitt 50% af áður úthlutuðum viðbótaraflaheimildum.

4. gr.

Óheimilt er að framselja aflaheimildir sem úthlutað er samkvæmt þessari reglugerð. Heimilt er að flytja allt að 10% af úthlutuðum viðbótaraflaheimildum skips yfir á næsta ár.

5. gr.

Fiskistofa annast úthlutun viðbótaraflaheimilda gegn greiðslu gjalds á grundvelli umsókna og skal vikulega úthluta aflaheimildum á grundvelli umsókna sem borist hafa undanfarandi viku.

Ef umsóknir um viðbótaraflaheimildir eru umfram þær aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru skal Fiskistofa skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt á milli umsækjenda, enda hafi umsækjandi ekki sótt um minna magn en því nemur. Verð á viðbótaraflaheimildum í makríl skal nema sömu fjárhæð og veiðigjald fyrir makríl og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Hafi gjald ekki verið greitt í síðasta lagi á öðrum virkum degi úthlutunarviku fellur réttur útgerðar til úthlutunar á grundvelli umsóknarinnar niður.

Á heimasíðu Fiskistofu skal vikulega birta upplýsingar um magn makríls sem til ráðstöfunar er.

Skip í A-flokki skulu sækja um sinn hlut af viðbótaraflaheimildum til Fiskistofu fyrir 10. september ár hvert og skal Fiskistofa úthluta því sem eftir er jafnt á milli umsækjenda 16. september ár hvert.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 10. gr. b laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 606/2019 um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótaraflaheimildum í makríl.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. ágúst 2019.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Erna Jónsdóttir.

Svava Pétursdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.