Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

709/2021

Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla.

1. gr.

3. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Vigtunarleyfishafi skal ávallt beita sömu aðferð við vigtun úrtaks. Það á þó ekki við um fiskmarkaði.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. júní 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.