Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

675/2018

Reglugerð um þorskígildisstuðla samkvæmt 19. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum fiskveiðiárið 2018/2019. - Brottfallin

1. gr.

Þorskígildisstuðlar hafa verið reiknaðir samkvæmt 19. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

2. gr.

Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2018 til 31. ágúst 2019 eru þessir:

Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar
Beitukóngur 0,54 Innfjarðarækja 1,21 Skrápflúra 0,28
Blágóma 0,20 Ígulker 0,57 Skötuselur 1,76
Blálanga 0,67 Íslensk sumargotssíld 0,15 Slétti langhali 0,39
Búrfiskur 2,27 Keila 0,40 Smokkfiskur 0,08
Dílamóri 0,91 Kræklingur 0,00 Snarphali 0,20
Djúpkarfi 0,85 Kúfskel 0,38 Spærlingur 0,07
Geirnyt 0,00 Langa 0,74 Steinbítur 0,58
Gjölnir 0,25 Langlúra 0,55 Stinglax 0,54
Grálúða 2,43 Litla brosma 0,07 Stóra brosma 0,14
Grásleppa 0,99 Litli karfi 0,34 Sæbjúga 0,27
Grjótkrabbi 0,62 Loðna 0,13 Tindaskata 0,08
Gulldepla 0,00 Lúða 1,75 Túnfiskur 1,38
Gullkarfi 0,63 Lýsa 0,42 Ufsi 0,62
Gulllax 0,38 Náskata 0,12 Urrari 0,08
Háfur 0,21 Rauðmagi 0,79 Úthafsrækja 1,17
Hákarl 0,01 Rækja við Snæfellsnes 1,17 Vogmær 0,08
Hámeri 0,59 Sandhverfa 2,18 Ýsa 1,05
Hlýri 0,89 Sandkoli 0,25 Þorskur 1,00
Humar (slitinn) 9,54 Skarkoli 0,79 Þykkvalúra/sólkoli 1,55
Hvítskata 0,10 Skata 0,28 Öfugkjafta 0,84
Hörpudiskur 0,38        

Þorskígildisstuðlar vegna aflaheimilda sem miðast við almanaksárið 2019 eru þessir:

Tegund Stuðlar
Kolmunni 0,08
Makríll 0,22
Norður-Íshafsþorskur 1,00
Norsk-íslensk síld 0,16
Rækja á Dohrnbanka 0,00
Rækja á Flæmingjagrunni 0,00
Úthafskarfi 0,71

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi 1. september 2018.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. júlí 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Erna Jónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica