Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

671/2017

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði í Faxaflóa. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 24. júlí 2017 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði í Faxaflóa, á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1.  64° 06,00′ N - 22° 24,00′ V
2.  64° 06,00′ N - 22° 49,20′ V
3.  64° 21,00′ N - 22° 49,20′ V
4.  64° 21,00′ N - 22° 24,00′ V
5.  64° 06,00′ N - 22° 24,00′ V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. júlí 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica