Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

665/2020

Reglugerð um endurmenntun endurskoðenda.

Gildissvið.

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til endurmenntunar endurskoðenda samkvæmt 9. gr. laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun.

Krafa um viðvarandi endurmenntun.

2. gr.

Endurskoðendur skulu sækja endurmenntun eftir því sem nánar er kveðið á um í reglugerð þessari til þess að tryggja að þeir viðhaldi reglulega fræðilegri þekkingu, faglegri hæfni og faglegum gildum.

3. gr.

Endurskoðandi sem lagt hefur inn löggildingu sína og óskar eftir að sér verði veitt réttindi á ný, sbr. 2. mgr. 11. gr. laga nr. 94/2019, skal sanna að hann hafi uppfyllt endurmenntunarkröfur þriggja ára tímabils áður en honum eru veitt réttindin að nýju.

4. gr.

Endurmenntun skal að lágmarki svara til 20 klukkustunda á ári og samtals 120 klukkustunda á hverju þriggja ára tímabili.

Endurmenntunin skal miða að því að viðhalda þeim kröfum sem gerðar eru til þess að standast próf til löggildingar til endurskoðunarstarfa samkvæmt reglugerð nr. 595/2020 um próf til löggildingar endurskoðunarstarfa sem sett var á grundvelli laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun. Fjöldi klukkustunda í endurmenntun á hverju þriggja ára tímabili sem kveðið er á um í 1. mgr. skal að lágmarki svara til:

  1. 30 klukkustunda á sviði endurskoðunar. Sem dæmi um viðfangsefni eru, alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar og aðrar staðfestingar (IFAC International Assurance Pronouncements), áhættustýring og innra eftirlit, lagakröfur og aðrir faglegir staðlar sem tengjast endurskoðun og endurskoðendum.
  2. 20 klukkustunda á sviði reikningsskila og fjármála. Sem dæmi um viðfangsefni eru lög um ársreikninga og önnur sérlög og reglugerðir um reikningsskil sem og samstæðureikningsskil og settar reikningsskilareglur á grundvelli þeirra, alþjóðlegir reikningsskilastaðlar og greining fjárhagsupplýsinga, kostnaðarbókhald og stjórnendareikningsskil.
  3. 15 klukkustunda á sviði skatta- og félagaréttar. Sem dæmi um viðfangsefni eru skattalög, félagaréttur og stjórnarhættir fyrirtækja.
  4. 10 klukkustunda á sviði siðareglna og faglegra gilda. Sem dæmi um viðfangsefni eru siðareglur endurskoðenda, leiðbeiningar um góða stjórnarhætti og fyrirmæli laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Þær 45 klukkustundir sem eru umfram það lágmark sem kveðið er á um í 2. mgr. skulu falla innan stafliða a til d.

Endurmenntunartímabil endurskoðanda sem fær löggildingu í fyrsta sinn samkvæmt 3. gr. laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun hefst 1. janúar árið eftir að löggilding er veitt.

5. gr.

Endurskoðandi sem hefur lokið endurmenntun umfram 120 klukkustundir á þriggja ára tímabilinu samkvæmt 1. mgr. 4. gr. getur flutt allt að 20 klukkustundir yfir á næsta endurmenntunartímabil.

Hvað telst til endurmenntunar.

6. gr.

Þátttaka endurskoðanda í faglegum námskeiðum og ráðstefnum telst til endurmenntunar. Námskeið sem fram fer með rafrænum hætti telst til endurmenntunar. Hver klukkustund sem varið er til námskeiðs eða ráðstefnu telst klukkustund í endurmenntun.

7. gr.

Þátttaka endurskoðanda í faglegu nefndarstarfi félagasamtaka endurskoðenda, prófnefndar endurskoðenda og endurskoðendaráðs telst til endurmenntunar. Hver klukkustund sem varið er til starfa í fagnefndum telst klukkustund í endurmenntun.

8. gr.

Kennslustörf og fyrirlestrahald endurskoðanda teljast til endurmenntunar ef um er að ræða efni sem fellur undir 4. gr.

Kennslustörf og fyrirlestrahald endurskoðenda þar sem farið er endurtekið yfir sama efni telst ekki til endurmenntunar.

Kennslustörf og fyrirlestrahald endurskoðenda sem varir í 1 klukkustund samsvarar 4 klukkustundum í endurmenntun.

9. gr.

Blaða- og greinaskrif teljast til endurmenntunar ef endurskoðandi:

  1. hefur skrifað sjálfur eða með öðrum faglegt efni til birtingar í blöðum, tímaritum eða bókum;
  2. er höfundur eða meðhöfundur að rannsóknarverkefni sem til dæmis er hluti af framhaldsnámi á háskólastigi.

Ritverk sem telst til endurmenntunar umreiknast þannig að 2340 slög án stafabils teljast sem ein klukkustund í endurmenntun. Ef fleiri höfundar koma að verkinu ásamt endurskoðanda telst endurmenntunartími það hlutfall sem endurskoðandi hefur lagt til ritverksins.

Lestur faglegs efnis samkvæmt stafliðum a til d í 2. mgr. 4. gr. telst til endurmenntunar, þó að hámarki 10 klukkustundir á ári.

10. gr.

Það er á ábyrgð hvers endurskoðanda að meta hvort endurmenntun stenst þær faglegu kröfur sem fram koma í 4. gr.

Skjölun og staðfesting.

11. gr.

Endurskoðendaráð hefur eftirlit með því að endurskoðandi uppfylli kröfur um endurmenntun.

Endurskoðandi skal halda skrá yfir endurmenntun sína og halda utan um staðfestingar á endurmenntun.

Endurskoðandi skal senda endurskoðendaráði upplýsingar um endurmenntun næstliðins árs fyrir 1. febrúar ár hvert. Endurskoðendaráði er heimilt að semja við félagasamtök endurskoðenda um að þau haldi utan um endurmenntun félagsmanna og skili upplýsingum um endurmenntun til endurskoðendaráðs árlega.

12. gr.

Endurskoðandi skal leggja fram staðfestingu á að hann hafi fullnægt endurmenntun sem svarar til 60 klukkustunda af þeim 120 klukkustundum sem krafist er á hverju þriggja ára tímabili, óski endurskoðendaráð þess. Að lágmarki skulu 10 klukkustundir í endurmenntun hvers árs vera staðfestanlegar.

Önnur ákvæði.

13. gr.

Ef sérstakar ástæður gefa tilefni til getur endurskoðendaráð veitt endurskoðanda sem ekki hefur lokið tilskildum fjölda klukkustunda í endurmenntun frest til að ljúka endurmenntun sem á vantar.

Beiðni um undanþágu ásamt rökstuðningi skal berast ráðinu fyrir 1. febrúar vegna endurmenntunartímabils sem lýkur 31. desember árið á undan.

14. gr.

Hafi endurskoðandi ekki lokið endurmenntun í samræmi við reglugerð þessa telst hann ekki hafa fullnægt skilyrðum til að viðhalda réttindum sínum sem endurskoðandi og fer með mál hans samkvæmt 10. gr. laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun.

Gildistaka og brottfall eldri reglugerðar.

15. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 6. mgr. 9. gr. laga nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um endurmenntun endurskoðenda nr. 30/2011.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. júní 2020.

F. h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Harpa Theodórsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.