Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Ógild reglugerð

657/2021

Reglugerð um bann við veiðum á ígulkerum á veiðisvæðum í Breiðafirði.

1. gr.

Frá 4. júní 2021 eru allar veiðar á ígulkerum óheimilar á svæðum A, B og C í Breiðafirði, sbr. reglugerð nr. 765/2020 um veiðar á ígulkerum.

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi og fellur úr gildi 31. ágúst 2021.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. júní 2021.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.