Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

636/2017

Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 835/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 669/2009 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 882/2004 að því er varðar aukið, opinbert eftirlit með innflutningi á tilteknu fóðri og matvælum, sem eru ekki úr dýraríkinu. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1142 frá 27. júní 2017 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 669/2009 að því er varðar skrána yfir fóður og matvæli sem eru ekki úr dýraríkinu og falla undir aukið, opinbert eftirlit með innflutningi.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1142 er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna fóðureftirlits sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli eða 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

6. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. júlí 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Eggert Ólafsson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica