Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

621/2016

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar ráðsins (ESB), á sviði samkeppnismála, nr. 316 frá 21. desember 2014 um beitingu 3. mgr. 101. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart flokkum samninga um tækniyfirfærslu.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 293/2014 frá 12. desember 2014 gildir eftirtalin ESB-gerð hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 316 frá 21. desember 2014 um beitingu 3. mgr. 101. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart flokkum samninga um tækniyfirfærslu.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 316/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, 23. apríl 2015, bls. 644-650.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. júlí 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Sigrún Brynja Einarsdóttir.

Ólafur Egill Jónsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.