Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

607/2017

Reglugerð um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2017/2018. - Brottfallin

I. KAFLI

Veiðileyfi í atvinnuskyni.

1. gr.

Veiðar í atvinnuskyni í fiskveiðilandhelgi Íslands eru óheimilar nema að fengnu leyfi Fiskistofu. Um veitingu veiðileyfa í atvinnuskyni fer skv. 5. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

II. KAFLI

Heildarafli og veiðitímabil.

2. gr.

Leyfilegur heildarafli í óslægðum botnfiski, íslenskri sumargotssíld og humri:

Tegund/Lestir A B C D E F G H I
1. Þorskur                  
Til úthlutunar 255.172 973 3.038 1.921 5.179 228 2.186 13.524 241.648
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.   736 2.301 1.454 3.921 172 1.656    
Samtals þorskur liðir B til G   1.709 5.339 3.375 9.100 400 3.842    
2. Ýsa                  
Til úthlutunar 39.890 204 514 967     429 2.114 37.776
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.   82 206 388     172    
Samtals ýsa liðir B til G   286 720 1.355     601    
3. Ufsi                  
Til úthlutunar 60.237 291 995   1.000   907 3.193 57.044
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.                  
Samtals ufsi liðir B til G   291 995   1.000   907    
4. Steinbítur                  
Til úthlutunar 8.540 16 72 308     57 453 8.087
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.   20 91 392     72    
Samtals steinbítur liðir B til G   36 163 700     129    
5.1 Gullkarfi                  
Til úthlutunar 45.450 217 553 40 100   684 2.409 43.041
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.                  
Samtals gullkarfi liðir B til G   217 553 40 100   684    
5.2 Djúpkarfi 11.786             625 11.161
6. Grálúða 13.536             717 12.819
7. Sandkoli 500             27 474
8. Skrápflúra 0                
9. Skarkoli 7.103             376 6.727
10. Þykkvalúra 1.304             69 1.235
11. Langlúra 1.116             59 1.057
12. Keila                  
Til úthlutunar 3.770 10 73 60     57 200 3.570
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.                  
Samtals keila liðir B til G   10 73 60     57    
13. Langa                  
Til úthlutunar 7.598 35 83 170     115 403 7.195
5,3% sbr. 3. mgr. 8. gr.                  
Samtals langa liðir B til G   35 83 170     115    
14. Skötuselur 853             45 808
15. Humar 1.150             61 1.089
16. Íslensk sumargotssíld 38.712             2.052 36.660
17. Blálanga 1.956             104 1.852
18. Gulllax 9.310             493 8.817
19. Litli karfi 1.500             80 1.421
20. Úthafsrækja 0                

Skýringar á töflu:

  1. Leyfilegur heildarafli.
  2. Til uppbóta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 (skel- og rækjubætur).
  3. Til ráðstöfunar skv. 2. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 (til stuðnings byggðarlögum).
  4. Til línuívilnunar skv. 8. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006.
  5. Til strandveiða skv. 6. gr. a laga nr. 116/2006.
  6. Til frístundaveiða skv. 5. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006.
  7. Byggðakvóti Byggðastofnunar skv. 10. gr. a. laga nr. 116/2006.
  8. Samkvæmt 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%).
  9. Fiskistofa úthlutar á grundvelli aflahlutdeildar.

Aflamark í botnfiski miðast við slægðan fisk með haus nema í gullkarfa, litla karfa, gulllax, og djúpkarfa sem miðast við óslægðan fisk.
Veiðitímabil botnfisks er frá og með 1. september 2017 til og með 31. ágúst 2018.
Aflamark í humri miðast við slitinn humar.
Heimilt er að veiða rækju við Snæfellsnes frá og með 1. maí og til og með 15. mars ár hvert.
Veiðitími humars og íslenskrar sumargotssíldar er ákveðinn í sérstakri reglugerð.
Aflamark í uppsjávarfiski miðast við óslægðan fisk.

3. gr.

Leyfilegur heildarafli í eftirfarandi tegundum, á viðkomandi tímabilum:

  Lestir Skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006 (5,3%) Til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar Veiðitímabil
1. Hörpudiskur        
2. Innfjarðarækja:        
Innfjarðarækja skiptist:        
 Arnarfjörður        
 Breiðafjörður, norðurfirðir        
 Eldeyjarsvæði        
 Húnaflói        
 Ísafjarðardjúp        
 Skagafjörður        
 Skjálfandaflói        
 Öxarfjörður        

Leyfilegur heildarafli í innfjarðarækju er miðaður við bráðabirgðatillögur Hafrannsóknastofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna og verður ákvörðun um heildarafla innfjarðarækju endurskoðuð að fengnum nýjum tillögum stofnunarinnar.

Veiðitími og heildarafli annarra tegunda er ákveðinn í sérstakri reglugerð eða með sérstökum leyfum.

Veiðitímabil innfjarðarækju er skv. reglugerð um rækjuveiðar innfjarða. Heimilt er með tilkynningu til leyfishafa að breyta veiðitíma á ákveðnum veiðisvæðum innfjarðarækju, að fenginni umsögn Haf­rannsókna­stofnunar, rannsókna- og ráðgjafarstofnunar hafs og vatna.

3. gr. a

Á árinu 2017 er íslenskum skipum heimilt að veiða 52,48 tonn af Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski miðað við afla upp úr sjó. Af þeim heimildum er 45 tonnum úthlutað til veiða með línu og 7,48 tonnum vegna áætlaðs meðafla íslenskra skipa á bláuggatúnfiski sbr. reglugerð um veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski.

III. KAFLI

Frádráttur aflaheimilda fyrir úthlutun aflamarks og skiptimarkaður með aflamark.

4. gr.

Fyrir úthlutun aflamarks allra tegunda til einstakra skipa, sem háðar eru takmörkun á leyfilegum heildarafla fiskveiðiárið 2017/2018 skal draga 5,3% frá úthlutun hverrar tegundar, sbr 3., 5. og 6. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006. Skal því ráðstafað samkvæmt 5. mgr. 6. gr., 6. gr. a, 1. og 2. tl. 1. mgr. 10. gr., 10. gr. a og 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

5. gr.

Fiskistofa skal sjá um framkvæmd skipta sbr. 6. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og annast skiptimarkað fyrir aflamark.

Við framkvæmd skiptimarkaðar skal Fiskistofa auglýsa hverju sinni eftir tilboðum í það magn afla­marks sem ráðherra ákveður. Auglýsa skal eftir tilboðum í tiltekið magn aflamarks í einstakri tegund í skiptum fyrir aflamark í einni af eftirfarandi tegundum: Þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu og gullkarfa, svo lengi sem aflamark er til ráðstöfunar. Fiskistofa hefur heimild til að binda tilboð við tiltekna tegund til að ná markmiðum 2. ml. 1. mgr. 4. gr. þessarar reglugerðar. Fiskistofa skal auglýsa eftir tilboðum eigi síðar en 10. hvers mánaðar, frá og með 10. október til og með 10. júlí. Ákveði ráðherra aflamark til úthlutunar á öðrum tíma en 1. september, getur Fiskistofa auglýst eftir tilboðum á öðrum tíma. Tilboð skulu berast Fiskistofu fyrir kl. 16.00 sjö dögum frá birtingu auglýsingar á heimasíðu Fiskistofu. Þegar til­boð berst Fiskistofu er það bindandi fyrir aðila. Þó er aðila heimilt að afturkalla tilboð sitt enda berist afturköllunin Fiskistofu áður en tilboðsfrestur er liðinn. Fiskistofu er einungis heimilt að veita upplýsingar um tilboð eftir að tilboðsfrestur er liðinn og skal þá birta upplýsingarnar á heimasíðu Fiskistofu. Birta skal einungis upplýsingar um samþykkt tilboð.

Fiskistofa ákveður form tilboða. Í tilboði skal útgerðaraðili skips tilgreina magn þeirrar tegundar sem boðið er í og magn þeirrar tegundar sem boðið er í skiptum, svo og önnur atriði sem Fiskistofa ákveður.

Fiskistofa skal samþykkja það tilboð sem hæst er. Við mat tilboða skal Fiskistofa, þar sem tilboð geta falið í sér mismunandi tegundir sem endurgjald, miða við meðalverð tegunda í viðskiptum með afla­mark, sem birt er á vef Fiskistofu, undanfarna 30 daga eða eftir atvikum síðasta mánuð sem viðskipti voru með tegund. Ef hæstu tilboð eru jöfn skal magni skipt hlutfallslega á milli tilboðsgjafa. Ef hæsta tilboð er aðeins í hluta þess magns sem í boði er skal það samþykkt. Síðan skal næst hæsta tilboðið samþykkt, þar til því aflamarki sem var í boði hefur verið ráðstafað. Fiskistofa getur hafnað tilboðum í tegund þegar þorskígildistonn uppboðstegundar Fiskistofu er lægra en 50% þorsk­ígildis­tonna skipti­tegundar (þorskur, ýsa, ufsi, steinbítur, löngu, keilu og gullkarfa).

Ef aflamark í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu eða gullkarfa sem látið hefur verið í skiptum, er umfram það aflamark sem innheimta skal, er heimilt að bjóða þær tegundir á skiptimarkaði.

Aflamark sem látið er í skiptum telst ekki flutt af skipi í skilningi 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

IV. KAFLI

Úthafsrækjuveiðisvæði.

6. gr.

Til úthafsrækju telst rækja, sem veidd er á svæðum, sem skilgreind eru í reglugerð um úthafsrækjuveiðisvæði o.fl.

Úthafsrækju sem veidd er á Dohrnbanka vestan 26°V og norðan 65°30´N skal skrá sérstaklega. Skip sem stunda veiðar á Dohrnbanka skulu búin fjarskiptabúnaði, sem sendir upplýsingar með sjálf­virkum hætti til Landhelgisgæslunnar um staðsetningu skipsins á klukkustundar fresti, frá því skipið lætur úr höfn og þar til það kemur til hafnar að nýju til löndunar afla.

V. KAFLI

Skipting leyfilegs afla.

7. gr.

Veiðiheimildum í þeim tegundum sem heildarafli er takmarkaður af, skv. 2. og 3. gr. skal skipt milli einstakra skipa í samræmi við aflahlutdeild eða krókaaflahlutdeild þeirra í viðkomandi tegund. Úthlutað aflamark/krókaaflamark hvers skips í hverri einstakri tegund ræðst annars vegar af aflahlutdeild/krókaaflahlutdeild skipsins í viðkomandi tegund en hins vegar af úthlutuðu heildaraflamarki í tegundinni skv. 2. og 3. gr.

VI. KAFLI

Krókaaflamarksbátar.

8. gr.

Þeir bátar einir geti öðlast veiðileyfi með krókaaflamarki sem eru styttri en 15 metrar að mestu lengd og minni en 30 brúttótonn, sbr. 2. mgr. 4.gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Óheimilt er að stækka bátana þannig að þeir verði stærri en þessu nemur. Bátum, sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, skal úthlutað krókaaflamarki í þorski, ýsu, ufsa, steinbít, löngu, keilu, blálöngu, litla karfa og gullkarfa á grundvelli krókaaflahlutdeildar þeirra. Um krókaaflahlutdeild og krókaaflamark gilda sömu reglur um útreikning, nýtingu og framsal og gilda um aflahlutdeild og aflamark nema öðruvísi sé kveðið á um í lögum eða reglugerð þessari.

Bátum sem leyfi hafa til veiða með krókaaflamarki, er einungis heimilt að stunda veiðar með línu og handfærum. Ráðherra getur veitt undanþágu frá banni þessu með sérstökum leyfum til veiða á botndýrum með plógum og gildrum svo og til hrognkelsaveiða í net. Afli sem fæst við slíkar veiðar reiknast til aflamarks bátsins.

Heimilt er að flytja til krókaaflamarksbáts aflamark í öðrum tegundum botnfisks en tilgreindar eru í 1. mgr. þessarar greinar. Einnig er heimilt að flytja aflamark í ufsa og þorski frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í ýsu. Jafnframt er heimilt að flytja aflamark í steinbít frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í þorski, ýsu og löngu. Veiði bátur aðrar tegundir en hann hefur krókaaflamark í, skal skerða aflamark hans í öðrum tegundum skv. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, og reglur settar samkvæmt þeim ákvæðum. Hverjum báti skal þó heimilt, sbr. 7. gr. laganna, án þess að til skerðingar komi, að veiða allt að 2,0% af heildarafla sínum í kvótabundnum botnfisktegundum, öðrum en þeim sem tilgreindar eru í 1. mgr., þó þannig að afli í einni tegund fari aldrei yfir 1% af heildarafla bátsins.

VII. KAFLI

Útreikningur aflamarks.

9. gr.

Þegar umreikna skal óslægðan fisk í slægðan skal margfalda magn þorsks, ýsu og ufsa með 0,84, grá­lúðu, skarkola, sandkola, skrápflúru, langlúru og þykkvalúru með 0,92, steinbíts, keilu og skötu­sels með 0,90 og löngu og blálöngu með 0,80.

Þegar umreikna skal slægðan fisk í óslægðan skal deila í magn þorsks, ýsu og ufsa með 0,84, grálúðu, skarkola, sandkola, skrápflúru, langlúru og þykkvalúru með 0,92, steinbíts, keilu og skötusels með 0,90 en löngu og blálöngu með 0,80.

Þegar umreikna skal slitinn humar yfir í óslitinn skal margfalda vegið magn humarhala með 3,25. Þegar umreikna skal óslitinn humar yfir í slitinn humar skal deila í vegið magn óslitins humars með 3,25.

Við umreikning landaðra grásleppuhrogna í heila grásleppu til skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við margföldunarstuðulinn 3,4.

Grásleppa skal vegin á hafnarvog samkvæmt ákvæðum 6. gr. reglugerðar nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla. Við vigtun grásleppuhrogna skal brúttóvigta aflann og skrá fjölda tunna eða kara. Við ákvörðun magns hrogna til skráningar í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal að frádreginni þyngd íláta miða við reiknistuðulinn 0,80.

Þorskur styttri en 50 sm (27 sm hausaður) og ufsi styttri en 50 sm (31 sm hausaður), ýsa styttri en 45 sm (26,5 sm hausuð) og gull- og djúpkarfi styttri en 33 sm teljast að hálfu til aflamarks, enda fari afli undir áðurgreindum stærðarmörkum ekki yfir 10% af viðkomandi tegund í veiðiferð. Undirmálsafla skal haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn sérstaklega af löggiltum vigtarmanni. Þó er heimilt að ákvarða magn undirmáls í gull- og djúpkarfaafla við endurvigtun í vinnsluhúsi. Skal gullkarfa og djúpkarfa sem þannig er flokkaður frá í vinnslu­húsi til ákvörðunar á magni undirmáls, haldið aðgreindum frá öðrum afla. Ákvæði þessarar málsgreinar gilda þó ekki um afla sem flakaður er um borð í veiðiskipi. Hausaðan fisk skal mæla frá sporðsenda að gotrauf.

Komi afli í veiðarfæri skips, sem er selbitinn eða skemmdur á annan hátt, sem ekki er unnt að komast hjá við tilteknar veiðar, skal ekki reikna þann afla til aflamarks enda sé honum haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega. Þennan afla er eingöngu heimilt að nýta til bræðslu.

Heimilt er skipstjóra að ákveða að hluti aflans reiknist ekki til aflamarks skipsins. Þessi heimild takmarkast við 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla, sem viðkomandi skip veiðir á fiskveiðiárinu og er bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. Aflanum sé haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn og skráður sérstaklega.
  2. Aflinn sé seldur á uppboði á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafla og andvirði hans renni til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins sbr. lög nr. 37/1992, með síðari breytingum.
  3. Heimildin skiptist í fjögur þriggja mánaða tímabil á fiskveiðiárinu. Ekki er heimilt að flytja ónýttar heimildir milli tímabilanna. Þó má miða ýsuafla sem fæst sem meðafli eða meðafla við grásleppuveiðar, við heimild fiskveiðiársins í heild, enda sé sá afli gerður upp í lok þess.

Um heimild til veiða umfram aflamark í einstökum fisktegundum sem skerðir aflamark annarra botnfisktegunda hlutfallslega gilda ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

Sé botnfiskafli fluttur óunninn á erlendan markað án þess að hafa verið endanlega vigtaður hér á landi og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu skal reikna aflann með 5% álagi.

10. gr.

Þegar meta skal til hvaða fiskveiðiárs tiltekinn afli telst, skal miða við hvenær afla er landað hér á landi. Þannig telst afli sem landað er 1. september 2017 eða síðar til fiskveiðiársins 2017/2018, enda þótt veiðiferð hefjist fyrir upphaf þess fiskveiðiárs.

Sigli skip með eigin afla á erlendan markað, skal afli teljast til þess fiskveiðiárs, þá er skipið sannanlega hættir veiðum fyrir siglingu.

VIII. KAFLI

Framsal aflamarks og aflahlutdeildar.

11. gr.

Þegar fiskiskipi hefur verið úthlutað aflamarki, er heimilt að flytja aflamarkið á milli fiskiskipa enda leiði flutningurinn ekki til þess að veiðiheimildir skipsins verði bersýnilega umfram veiðigetu þess. Krókaaflamark verður aðeins flutt til báts, sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og uppfyllir stærðarmörk sem kveðið er á um í 8. gr.

Á hverju fiskveiðiári er heimilt að flytja af fiskiskipi 50% þess aflamarks sem skipi var úthlutað í þorskígildum talið á grundvelli verðmætahlutfalla einstakra tegunda. Auk þess er heimilt að flytja frá skipi það aflamark í einstökum tegundum sem flutt hefur verið til skips. Heimilt er Fiskistofu að víkja frá þessari takmörkun á heimild til flutnings á aflamarki vegna varanlegra breytinga á skipakosti útgerða eða þegar skip hverfur úr rekstri um lengri tíma vegna alvarlegra bilana eða sjótjóns.

Tilkynna skal Fiskistofu um flutning aflamarks á eyðublaði sem Fiskistofa gefur út og öðlast flutningurinn ekki gildi fyrr en Fiskistofa hefur staðfest hann. Í tilkynningunni skulu koma fram upplýsingar um nöfn og skipaskrárnúmer þeirra skipa sem aflamark er flutt á milli og magn aflamarks, auk upplýsinga um verð aflamarks nema skipin séu í eigu sama aðila. Eigandi og útgerðaraðili þess skips sem aflamarkið er flutt frá skulu undirrita og leggja fram tilkynningu um flutning.

Tilkynningu um flutning aflamarks skal fylgja staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs um að fyrir liggi samningur útgerðar og áhafnar þess skips sem aflamarkið er flutt til, um fiskverð til viðmiðunar hlutaskiptum. Skal sá samningur uppfylla kröfur sem Verðlagsstofa skiptaverðs gerir skv. ákvæðum laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna með síðari breytingum. Telji Verðlagsstofa skiptaverðs að gildissvið laga nr. 13/1998 nái ekki yfir viðkomandi skip, skal staðfesting Verðlagsstofu skiptaverðs lúta að því.

Sá sem tilkynnir um flutning aflamarks skal greiða flutningsgjald fyrir hverja tilkynningu skv. gjaldskrá Fiskistofu. Þá skal útgerð greiða skv. gjaldskrá Fiskistofu hafi komið til skeytasendingar Fiskistofu til útgerðar og skipstjóra skv. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 57/1996, með síðari breytingum. Gjalddagi reiknings er við útgáfu hans og eindagi 15 dögum síðar. Gjaldið er óendurkræft. Hafi reikningur ekki verið greiddur á eindaga er Fiskistofu heimilt að stöðva frekari flutning aflamarks frá og til viðkomandi fiskiskips.

Heimilt er Fiskistofu að gera þjónustusamninga um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks milli fiskiskipa sem eru í eigu sama einstaklings eða lögaðila og skal greiða skv. gjaldskrá Fiskistofu fyrir slíka samninga fyrir hvert fiskveiðiár. Sækja skal til Fiskistofu um gerð þjónustusamnings um raf­rænar tilkynningar um flutning aflamarks á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til. Á umsóknar­eyðu­blöðunum skulu koma fram þær upplýsingar sem Fiskistofa telur nauðsynlegar og óskar þar eftir. Verði breytingar á atriðum sem útgerð hefur tilgreint í umsókn sinni skal hlutaðeigandi útgerð tilkynna Fiskistofu skriflega um breytingarnar án tafar.

Útgerð ber alfarið ábyrgð á öllum rafrænum tilkynningum um flutning aflamarks sem framkvæmdar eru samkvæmt þjónustusamningi hennar við Fiskistofu og skal útgerðin tryggja að óviðkomandi aðilar komist ekki yfir aðgang hennar til að tilkynna Fiskistofu rafrænt um flutning aflamarks. Þjónustu­samningur um rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks fellur úr gildi verði vanskil á greiðslu gjalds fyrir samninginn og ef hlutaðeigandi útgerð hefur brotið gegn reglum er gilda um flutning aflamarks eða skilyrðum sem sett hafa verið varðandi rafrænar tilkynningar um flutning aflamarks.

Fiskistofa skal daglega birta aðgengilegar upplýsingar um flutning aflamarks, þar á meðal um magn eftir tegundum, auk upplýsinga um verð, þar sem við á.

Tilkynning um flutning aflamarks skal hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 15 dögum eftir að veiðitímabili lýkur.

12. gr.

Flutning á aflahlutdeild milli fiskiskipa skal tilkynna Fiskistofu skriflega fyrirfram. Beiðni um flutning skal sett fram á eyðublaði sem Fiskistofa gefur út. Krókaaflahlutdeild verður aðeins flutt til báts sem hefur veiðileyfi með krókaaflamarki og uppfyllir stærðarmörk sem kveðið er á um í 8. gr. Eigandi þess skips, sem aflahlutdeildin er flutt frá, skal undirrita beiðni um flutning og skal undirritun hans staðfest af tveimur vottum. Við flutning á aflahlutdeild skal leggja fram veðbókarvottorð þess skips sem flutt er frá auk skriflegs samþykkis eftirgreindra aðila:

  1. þeirra er þinglýst samningsveð áttu í skipinu 1. janúar 1991,
  2. þeirra, sem eiga þinglýsta kvöð á skipinu þar sem kveðið er á um að framsal aflahlutdeildar sé óheimilt án samþykkis kvaðarhafa,
  3. þinglýst samþykki þeirra, sem eiga þinglýst samningsveð í skipinu frá og með 1. janúar 1998.

Flutningur aflahlutdeildar öðlast ekki gildi fyrr en staðfesting Fiskistofu liggur fyrir. Aldrei er heimilt að flytja aflahlutdeild milli skipa, leiði slíkur flutningur til þess að veiðiheimildir þess skips sem flutt er til verði bersýnilega umfram veiðigetu þess.

Umsóknir um flutning aflahlutdeildar milli fiskiskipa ásamt fullnægjandi fylgigögnum skulu hafa borist Fiskistofu eigi síðar en einum mánuði fyrir lok fiskveiðiárs. Berist umsókn innan mánaðar, hefur flutningur aflahlutdeildar ekki áhrif á úthlutun aflamarks komandi fiskveiðiárs.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila eða í eigu tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild en tilgreint er í 13. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Fyrir staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeildar og krókaaflahlutdeildar milli skipa skal eigandi þess skips sem flutt er frá greiða skv. gjaldskrá Fiskistofu.

IX. KAFLI

Veiðiskylda.

13. gr.

Veiði fiskiskip minna en 50% á fiskveiðiári af úthlutuðu aflamarki sínu og aflamarki sem flutt hefur verið frá fyrra fiskveiðiári, í þorskígildum talið, fellur aflahlutdeild þess niður og skal aflahlutdeild annarra skipa í viðkomandi tegundum hækka sem því nemur. Skal við mat á þessu hlutfalli miðað við verðmæti einstakra tegunda í aflamarki skips skv. 14. gr. Viðmiðunarhlutfall, sem ákveðið er í þessari málsgrein, lækkar þó um 5% fyrir hverja fulla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fisk­veiði­landhelgi Íslands á fiskveiðiárinu á þeim tegundum sem ekki hefur verið samið um veiðistjórn á. Hið sama á við þegar skipi er haldið til veiða utan lögsögu á tegundum sem samið hefur verið um veiðistjórn á og ekki teljast til deilistofna. Tefjist skip frá veiðum í fimm mánuði samfellt vegna tjóns eða meiri háttar bilana hefur afli þess fiskveiðiárs ekki áhrif til niðurfellingar aflahlutdeildar samkvæmt þessari grein.

X. KAFLI

Þorskígildisstuðlar.

14. gr.

Þorskígildisstuðlar fyrir fiskveiðiárið 1. september 2017 til 31. ágúst 2018 eru þessir:

Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar Tegund Stuðlar
Blálanga 0,63 Kolmunni 0,10 Skrápflúra 0,11
Djúpkarfi 0,80 Langa 0,73 Skötuselur 2,10
Grálúða 2,61 Langlúra 0,53 Steinbítur 0,59
Gullkarfi 0,60 Litli karfi 0,43 Ufsi 0,72
Gulllax 0,39 Loðna 0,13 Úthafsrækja 1,24
Humar, slitinn 8,12 Norsk-íslensk síld 0,23 Ýsa 1,07
Innfjarðarrækja 0,99 Rækja við Snæfellssnes 1,38 Þorskur 1,00
Íslensk sumargotssild 0,23 Sandkoli 0,19 Þykkvalúra 1,45
Keila 0,38 Skarkoli 0,69    

Ofangreindir stuðlar gilda við mat á því hvernig veiðiheimildir eru nýttar og varðandi færslu milli tegunda eftir því sem við á, sbr. 11. og 15. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

XI. KAFLI

Ýmis ákvæði.

15. gr.

Skipstjóra er skylt að halda fiski um borð í veiðiskipum aðgreindum eftir tegundum. Verði slíku ekki við komið vegna smæðar báts skal afli aðgreindur eftir tegundum við löndun. Ennfremur er skylt að láta vigta afla skv. ákvæðum III. kafla laga nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar og gildandi reglugerðar um vigtun sjávarafla.

Afla af skrápflúru og sandkola sem fenginn er á því veiðisvæði sem tilgreint er í 4. mgr. 2. gr. skal haldið aðskildum frá öðrum afla af þessum tegundum og hann veginn og skráður sérstaklega.

Skipstjórar fiskiskipa, sem halda til úthafsrækjuveiða á Dohrnbanka, sbr. 2. mgr. 6. gr., skulu tilkynna sérstaklega til Fiskistofu hvenær þær hefjast og hvenær þeim lýkur.

Ef haldið er til veiða utan fiskveiðilandhelgi Íslands skal, þegar haldið er úr höfn, tilkynna Fiskistofu hvar fyrirhugað sé að stunda veiðar. Þá skal tilkynna hvenær veiðar hefjast og hvenær þeim lýkur, nema annað sé ákveðið í sérstökum reglugerðum um viðkomandi veiðar. Í tilkynningunni komi fram, eftir því sem við á, áætlaður afli um borð, sundurliðaður eftir tegundum.

Í einni og sömu veiðiferð er óheimilt að stunda veiðar bæði innan og utan fiskveiðilögsögu Íslands. Þetta gildir þó ekki, haldi skip til veiða utan lögsögunnar á úthafskarfa, síld, loðnu, kolmunna, túnfiski eða makríl, enda sé Fiskistofu tilkynnt um slíkt í samræmi við reglur þar að lútandi.

Heimilt er þó með samþykki Fiskistofu að víkja frá banni skv. 5. mgr., enda hafi afli og aflasamsetning um borð í fiskiskipi verið staðfest með fullnægjandi hætti að mati Fiskistofu, áður en skip flytur sig milli veiðisvæða utan og innan lögsögunnar.

Þegar skip stundar veiðar utan lögsögu Íslands, í fiskveiðilögsögu annars ríkis eða á alþjóðlegu hafsvæði, og um er að ræða veiðar sem grundvallast á samningi sem íslensk stjórnvöld eru ekki aðilar að, skal skipstjóri tilkynna Fiskistofu mánaðarlega um veiðisvæði, veiðitíma, löndunarhöfn og landaðan afla sundurliðað eftir tegundum.

16. gr.

Útgerðum skipa sem fengið hafa leyfi Fiskistofu til að vinna afla um borð er skylt að lokinni veiðiferð að skila sérstakri skýrslu um afla til Fiskistofu á eyðublöðum sem Fiskistofa leggur til.

Þá er skipstjórum fiskiskipa skylt að halda sérstakar afladagbækur sbr. reglugerð um afladagbækur.

Kaupendum afla er skylt að skila til Fiskistofu skýrslum um móttekinn afla í því formi, sem Fiskistofa ákveður sbr. reglugerð um skýrsluskil vegna viðskipta með afla.

17. gr.

Heimilt er að nýta báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni, til veiða í frístundum, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, enda séu engin veiðarfæri um borð önnur en handfæri án sjálfvirknibúnaðar og/eða sjóstangir. Óheimilt er að selja aflann eða fénýta á annan hátt.

Skipstjórar báta, sem leyfi hafa til veiða í atvinnuskyni og fara til veiða skv. 1. mgr., skulu tilkynna Fiskistofu um það áður en veiðiferð hefst.

18. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

Um áminningar og sviptingu veiðileyfa vegna brota á ákvæðum reglugerðar þessarar fer skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og laga nr. 79/1997, um veiðar í fisk­veiði­landhelgi Íslands.

Um gjald vegna ólögmæts sjávarafla skal beita ákvæðum laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.

19. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi. Ákvæði 4. gr. koma til framkvæmda við gildistöku þessarar reglugerðar, en ákvæði annarra greina 1. september 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júlí 2017.

F.h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica