Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

604/2017

Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018. - Brottfallin

1. gr.

Almenn skilyrði fyrir úthlutun aflamarks.

Úthluta skal aflamarki til fiskiskipa sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  1. Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, við lok umsóknarfrests.
  2. Eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2017.
  3. Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2017. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.

Þetta skilyrði á þó ekki við ef einstaklingur eða lögaðili gera út fleiri en eitt fiskiskip sem skráð eru í fleiri en einu byggðarlagi. Í þeim tilvikum er heimilt að úthluta aflamarki byggðarlaga til fiskiskipa, sem uppfylla skilyrði a- og b-liðar og eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í öðru byggðarlagi en umsókn um byggðakvóta beinist að, ef þeir stunda einnig útgerð með skip sem skráð eru í því byggðarlagi sem þeir hafa heimilisfang í.

2. gr.

Sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarks innan einstakra byggðarlaga.

Ráðherra getur heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórna að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarks í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga.

3. gr.

Málsmeðferð á tillögum sveitarstjórna, staðfesting o.fl.

Ráðuneytið skal leita eftir afstöðu sveitarstjórna til þess hvort þær óski eftir að setja sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflamarksins innan einstakra byggðarlaga. Sveitarstjórnir skulu hafa fjögurra vikna frest til að senda ráðuneytinu tillögur sínar.

Eftir að tillögur sveitarstjórna hafa borist skulu þær birtar með aðgengilegum hætti, svo sem á vefsíðu ráðuneytisins, eigi síðar en sjö dögum áður en tekin verður afstaða til þeirra.

Ef fallist verður á tillögur sveitarstjórna um slík skilyrði staðfestir ráðuneytið tillögurnar, auglýsir þær í B-deild Stjórnartíðinda og felur Fiskistofu að úthluta aflamarki byggðarlagsins samkvæmt þeim. Berist tillögur sveitarstjórna ekki innan áðurnefnds frests eða ef ráðherra fellst ekki á tillögur sveitarstjórna fer um úthlutun aflamarks einstakra byggðarlaga til fiskiskipa samkvæmt 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum og ákvæðum þessarar reglugerðar.

4. gr.

Viðmiðanir um úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa.

Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2016 til 31. ágúst 2017. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur hlutur til þess niður og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum.

Afli af fiskiskipum sem landað er í byggðarlagi af bátum sem ekki eru skráðir innan viðkomandi byggðarlags á sama tíma, telst ekki til landaðs afla samkvæmt 1. mgr.

Réttindi til úthlutunar fylgja skipi, nema ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. hefur endurnýjað fiskiskip sitt á því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. og flutt aflahlutdeildir af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið getur hann í umsókn sinni óskað eftir að við úthlutun afla­marks skv. 1. mgr. sé tekið tillit til landaðs afla eldra skips umsækjanda í sömu hlutföllum og nemur þeim aflahlutdeildum sem hafa verið fluttar milli skipanna.

Ef fiskiskip er endurnýjað eftir að skipting aflamarks hefur farið fram samkvæmt 1. mgr. en áður en uppfyllt hafa verið skilyrði samkvæmt 6. gr. er heimilt að óska eftir að flytja rétt til úthlutunar afla­marks af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið, enda hafi verið gerður fyrirvari þess efnis í kaup­samningi eða afsali, hafi skip verið selt á því tímamarki.

5. gr.

Framkvæmd úthlutunar.

Fiskistofa annast úthlutun aflamarks, sem kemur í hlut einstakra byggðarlaga, til fiskiskipa og skal auglýsa eftir umsóknum útgerða í a.m.k. tveimur dagblöðum og á vefsíðu Fiskistofu: www.fiskistofa.is. Í umsóknum skulu koma fram upplýsingar sem Fiskistofa ákveður og skal umsóknum skilað á því formi sem stofnunin ákveður. Umsóknarfrestur skal vera tvær vikur. Fiskistofa annast mat og úrvinnslu umsókna og skal svara öllum umsóknum svo fljótt sem unnt er. Ákvarðanir Fiskistofu varðandi úthlutun samkvæmt þessari grein er heimilt að kæra til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. Kærufrestur er tvær vikur frá tilkynningu Fiskistofu um ákvörðun og skal úthlutun ekki fara fram fyrr en að þeim fresti liðnum. Skal ráðuneytið úrskurða um kærur innan tveggja mánaða.

6. gr.

Löndun til vinnslu.

Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga á tímabilinu frá 1. september 2017 til 31. ágúst 2018. Skilyrði þess að afla teljist landað til vinnslu er að honum sé haldið aðskildum frá öðrum afla ásamt því að vera vigtaður og skráður sérstaklega við vigtun á hafnarvog. Aflinn skal nema, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað samkvæmt reglugerð þessari. Eigandi fiskiskips skal gera skriflegan samning við fiskkaupanda um magn sem landað verður til vinnslu hjá viðkomandi vinnslu­aðila, þar sem fram kemur að vinnsluaðili skuldbindi sig til að vinna aflann og skal bæjar- eða sveitarstjórn árita samninginn til staðfestingar. Úthlutun aflamarks fer fram á grundvelli vigtar­nóta sem borist hafa Fiskistofu og skal úthlutun til þeirra ekki fara fram nema að því leyti sem það skilyrði er uppfyllt. Miða skal við allar botnfiskaflategundir sem gefinn hefur verið út þorsk­ígildis­stuðull fyrir. Einnig er það skilyrði fyrir úthlutun að ekki hafi verið flutt meira aflamark í þorsk­ígildum talið á fiskveiðiárinu 2017/2018 frá viðkomandi fiskiskipum en flutt hefur verið til þeirra þegar afhending aflamarks á sér stað. Afla sem boðinn er upp á fiskmarkaði telst ekki hafa verið landað til vinnslu samkvæmt þessari grein. Þá er einungis heimilt að meta til viðmiðunar sam­kvæmt þessari grein landaðan afla sem ekki hefur áður verið metinn til úthlutunar byggðakvóta.

Með vinnslu skv. 1. mgr. er átt við flökun, flatningu, frystingu, söltun eða herslu.

Ef eigandi eða leigutaki fiskiskips, sbr. 1. gr. hefur endurnýjað fiskiskip sitt eftir að lokið er því viðmiðunartímabili sem fram kemur í 1. mgr. 4. gr. en áður en uppfyllt hafa verið skilyrði sam­kvæmt þessari grein og eftirstöðvar á rétti til úthlutunar skv. 4. mgr. 4. gr. verið flutt af eldra skipinu yfir á endurnýjaða skipið, sbr. 3. mgr. 4. gr., skal við mat á hvort uppfyllt eru skilyrði samkvæmt þessari grein einnig heimilt að miða við landaðan afla beggja skipanna í viðkomandi byggðarlagi.

Fiskistofu er heimilt, að fengnu samþykki ráðuneytisins, að afhenda aflamark fiskiskips útá afla annars skips í eigu sama lögaðila. Jafnframt er heimilt, að fengnu samþykki ráðuneytisins, að flytja rétt til úthlutunar aflamarks milli skipa í eigu sama lögaðila. Óheimilt er að leigja skip annarra lögaðila til að uppfylla skilyrði um löndun afla til vinnslu samkvæmt þessari grein. Ráðherra er heimilt, að fengnum rökstuddum tillögum sveitarstjórnar, að víkja frá ákvæðum þessarar greinar enda sé það gert á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna. Um málsmeðferð og stað­festingu tillagna sveitarstjórna samkvæmt þessari grein skulu gilda ákvæði 3. gr.

Fiskistofu er heimilt samkvæmt beiðni útgerðaraðila að úthluta aflamarki fyrir fiskveiðiárið í fimm áföngum, 1/5 hverju sinni enda séu skilyrði um landað magn til vinnslu samkvæmt ákvæðum þessarar greinar uppfyllt í sama hlutfalli á sama tíma. Hafi skilyrði fyrir úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa á grundvelli reglugerðar þessarar ekki verið uppfyllt að fullu í lok þess tímabils sem fram kemur í 1. mgr. þessarar greinar, fellur niður réttur til aflamarks í hlutfalli við það sem upp á vantar að skilyrði séu uppfyllt. Takist ekki að úthluta öllu aflamarki viðkomandi skips fyrir lok fiskveiðiársins er Fiskistofu heimilt að úthluta áunnu aflamarki fiskveiðiársins 2017/2018 á fisk­veiðiárinu sem hefst 1. september 2018, enda hafi viðkomandi skip ekki flutt meira aflamark frá skipinu en til þess í lok fiskveiðiársins á undan.

7. gr.

Lágmarksverð.

Verð fyrir afla sem landað er til vinnslu til að uppfylla skilyrði 6. gr. skal ekki vera lægra en það verð sem ákveðið er sem viðmiðunarverð af Verðlagsstofu skiptaverðs.

8. gr.

Tryggingar fyrir greiðslum.

Heimilt er eigendum og útgerðum fiskiskipa að krefja vinnslustöðvar um tryggingar fyrir greiðslu afla sem landað er í byggðarlögum samkvæmt 6. gr., t.d. í formi bankaábyrgðar.

9. gr.

Framsal.

Framsal aflamarks sem úthlutað er samkvæmt reglugerð þessari er óheimilt en þó skulu heimil jöfn skipti á aflamarki í þorskígildum talið. Framsal aflamarks skal þó vera heimilt hafi fiskiskip efnt löndunar- og vinnsluskyldu í samræmi við 6. gr.

10. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda fyrir fiskveiðiárið 2017/2018.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júlí 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica