Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

558/2017

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu við Geirfugladrang. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 26. júní til og með 31. júlí 2017 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu við Geirfugladrang bannaðar á svæði sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:

          1. 63°40'00 N – 23°25'00 V
          2. 63°38'00 N – 23°22'00 V
          3. 63°35'00 N – 23°28'00 V
          4. 63°36'00 N – 23°31'00 V

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin tekur gildi 26. júní 2017 og fellur úr gildi 1. ágúst 2017.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. júní 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica