1. gr.
Frá 28. maí 2020 eru allar veiðar á ígulkerum óheimilar í Breiðafirði, norðursvæði, austan línu sem afmarkast af eftirfarandi hnitum:
og norðan við línu, sem er réttvísandi 65°13´00 N.
2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, til þess að öðlast þegar gildi og gildir til 31. ágúst 2020.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. maí 2020.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Jóhann Guðmundsson.